Hilmir Freyr Heimisson hefur vinningsforskot í Árósum að loknum sjö umferðum. Lenka Ptácníková er í öðru sæti í Prag. Helgi Áss Grétarsson vann Íslendingaslaginn í Slóvakíu. Alexander Oliver Mai hefur þátttöku í dag í Sevilla á Spáni.

Slovakia Open Piestany 

Sjötta umferð fór fram í gær.

Helgi Áss Grétarsson (2472) vann Íslendingaslaginn þegar hann vann Alexandr Domalchuk-Jonasson (2246). Vignir Vatnar Stefánsson (2461) gerði jafntefli í sinni skák.

Helgi Áss hefur 4 vinninga, Vignir Vatnar hefur 3½ vinning og Aleksandr hefur 3 vinninga.

Sjöunda umferð hófst kl. 8.

64 skákmenn frá 13 löndum taka þátt og þar á meðal sjö stórmeistarar. Mótið fer fram 11.-18. júlí.

Zlata Praha Open

Sjöunda umferð fór fram í gær.

Lenka Ptácníková (2066) og Jósef Omarsson (1606) unnu en Adam Omarsson (1794) gerði jafntefli.

Lenka hefur 5½ vinning og er í 2. sæti á mótinu. Jósef hefur 4½ vinning og Adam hefur 4 vinninga.

Áttunda og næstsíðasta umferð fer fram í dag og hefst kl. 14:30. Þá tefla mæðginin á 2.-4. borði!

34 skákmenn frá 5 löndum taka þátt í mótinu. Mótið fer fram 9.-17. júlí.

Skolernes 50 ára afmælismót

Sjötta og sjöunda umferð fóru fram í gær.

Hilmir Freyr Heimisson (2281) tók 1½ vinning í umferðum gærdagsins. Björn Hólm Birkisson (2095) gerði tvö jafntefli.

Hilmir er efstur með 6 vinninga. Hefur vinningsforskot á næsta mann. Björn Hólm hefur 3 vinninga.

Áttunda og næstsíðasta umferð fer fram í dag hefst kl. 12.

22 keppendur taka þátt og þar af 1 stórmeistari og 2 alþjóðlegir meistarar. Mótið fer fram 11.-17. júlí.

Ciudad de Sevilla

Alexander Oliver Mai (2159) hefur í dag þátttöku í alþjóðlegu móti í Sevilla á Spáni.

Til leiks eru skráðir 183 skákmenn frá 20 löndum. Mótið fer fram 16.-23. júlí.

- Auglýsing -