Afmælisbarnið að tafli í gær við Adam Omarsson. Mynd: Omar Salama.

Rúnar Sigurpálsson (2287), Magnús Pálmi Örnólfsson (2116) og Vignir Vatnar Stefánsson (2306) eru efstir og jafnir með fullt hús að loknum þremur umferðum á afmælismóti Ólafs Kristjánssonar sem fram fer um helgina í Hofi á Akureyri

Mótinu verður framhaldið í dag með umferðum 4-8 en alls eru tefldar 11 umferðir á mótinu.

Mótið er haldið til heiðurs Ólafi sem fagnaði áttræðisafmæli fyrir skemmstu.

 

- Auglýsing -