Vignir Vatnar vann afmælisbarnið. Mynd: Þórir Benediktsson.

Vignir Vatnar Stefánsson (2306) hefur mikla yfirburði á afmælismóti Ólafs Kristjánssonar sem fram fer í Hofi á Akureyri um helgina. Vignir hefur 7½ vinninga að loknum átta umferðum. Aðeins Stephan Briem (2191) hefur náð jafntefli gegn alþjóðlega meistaranum.

Frá skákstað. Mynd: ÞB

Magnús Pálmi Örnólfsson (2116), Rúnar Sigurpálsson (2287), Benedikt Briem (1635) og Jón Kristinn Þorgeirsson (2191) eru í 2.-5. sæti með 5½ vinning. Heilum tveimur vinningum á eftir Vigni.

Ungir TR-ingar. Mynd: Omar Salama

Veitt eru verðlaun fyrir fimm efstu sætin. Auk þess eru veitt verðlaun fyrir árangur í fjórum flokkum. Þar eru í forystu

  • Kvennaverðlaun: Iðunn Helgadóttir
  • Öldungaverðlaun: Áskell Örn Kárason
  • Stigaverðlaun (u2000): Benedikt Briem
  • Stigaverðlaun (u1600): Benedikt Þórisson

Mótinu lýkur á morgun með umferðum 9-11.

Mótið er haldið til heiðurs Ólafi Kristjánssyni sem fagnaði áttræðisafmæli fyrir skemmstu.

 

- Auglýsing -