Önnur umferð Haustmóts TR fór fram í gær. Í a-flokki unnu hinar stigahærri þá stigalægri. Bragi Þorfinnsson (2408), Alexander Oliver Mai (2135) og Benedikt Briem (2183) eru efstir með fullt hús. Adam Omarsson (1829) er efstur í opnum flokki.
A-flokkur
Úrslit 2. umferðar
Skák Hjörvars og Arnars var frestað.
Þriðja umferð fer fram á sunnudaginn. Þá mætast meðal annars Alexander og Benedikt.
Opinn flokkur
Mikið var um jafntefli í 2. umferð og svo fór að aðeins einn keppandi hefur fullt hús eftir tvær umferðir. Það er nokkuð magnað í 25 manna móti. Þar er á ferðinni Adam Omarsson (1829). Ellefu keppendur hafa svo 1½ vinning.
- Auglýsing -


Skákir annarar umferðar













