Stórmeistarinn Bragi Þorfinnsson (2408) er efstur með fullt hús að lokinni þriðju umferð Haustmóts TR, sem fram fór í dag. Bragi vann Arnar Milutin Heiðarsson (2020). Benedikt Briem (2183) og Alexander Oliver Mai (2135) eru í 2.-3. sæti með 2½ vinning eftir jafntefli í innbyrðis skák.
A-flokkur
Úrslit 3. umferðar
Fjórða umferð fer fram á miðvikudagskvöldið.
Opinn flokkur

Hart var barist í 3. umferð og engin jafntefli leyfð! Adam Omarsson (1829) er efstur með fullt hús eftir að hafa lagt stigahæsta keppendann, Jóhann H. Ragnarsson (1937) að velli. Fimm keppendur hafa 2½ vinning.
Röð efstu manna

- Auglýsing -
















