Skákfélag Akureyrar vann stórsigur í 5. umferð EM taflfélaga sem fram fór í Mayrhofen í Austurríki í gær. Taflfélag Reykjavíkur og Víkingaklúbburinn unnu einnig góða sigra.
Taflfélag Reykjavíkur vann sigur á tyrkneskri sveit með minnsta mun og hefndi þar ófara Víkinga frá umferðinni áður gegn sömu sveit. Sulypa og Ingva runnu.
Fjölnir tapaði fyrir sterkri belgískri sveit mað minnsta mun. Sigurbjörn Björnsson vann sína skák.
Víkingar unnu norska sveit með minnsta mun. Bræðurnir og formaðurinn unnu.
Skákfélaga Akureyrar vann stórsigur á belgískri sveit. Stefán Bergsson og Andri Freyr Björgvinsson fara sem fyrr mikinn.
Staða íslensku liðanna (styrkleikaröð í sviga)
- 24. (23) Taflfélag Reykjavíkur 6 stig
- 37. (37) Víkingaklúbburinn 5 stig
- 40. (35) Fjölnir (5 stig)
- 45. (58) Skákfélag Akureyrar 4 stig
70 sveitir taka þátt
Það verður einn Íslendingaslagur í dag þar sem Davíð Kjartansson mætir Óskari Bjarnasyni sem teflir fyrir skákfélag frá Lúxemborg.
Taflfélag Garðabæjar tapaði með fullu húsi fyrir sterkri úkraínskri sveit.

Staða íslensku liðanna (styrkleikaröð í sviga)
- 16 (15) Taflfélag GArðabæjar 3 stig
17 sveitir taka þátt.
- Heimasíða mótsins
- Facebook-síða – myndir (Fiona)
- Chess-Results (opinn flokkur)
- Chess-Results (kvennaflokkur)
- Beinar útsendingar (opinn flokkur) – hefjast kl. 12
- Beinar útsendingar (kvennaflokkur) – hefjast kl. 12















