Í vikunni birtust yfirlýsingar um mál sem skekið hefur skákheiminn og ratað í helstu stórblöð veraldar og frægt „tíst“ Elons Musks er varða ásakanir Magnúsar Carlsens á hendur Hans Niemann. Yfirlýsing FIDE, undirrituð af forsetanum Arkady Dvorkovich, liggur nærri þeirri skoðun sem viðruð hefur verið í þessum pistlum; að betri leiðir hafi verið tiltækar, en jafnframt að svindlmál í skákkeppnum sé verulegt áhyggjuefni.
Stuttu síðar birtist svo yfirlýsing Magnúsar Carlsens. Þó að hann gæti ekki fært neinar sönnur á mál sitt kveðst hann sannfærður um að Bandaríkjamaðurinn hafi ekki einungis svindlað í viðureign þeirra í Saint Louis, heldur mun oftar en hann hafi áður viðurkennt. Nefnt hefur verið mót á Kúbu sem Niemann vann nýlega. Því miður eru nokkrar staðhæfingar Magnúsar undanfarið hæpnar svo ekki sé fastar að orði kveðið. Tökum þrjú dæmi:
1. Að það sé einungis á færi örfárra skákmanna að vinna úr þeirri stöðu sem upp kom í skákinni.
Sannleikurinn er sá að úrvinnslan með örfáa menn á borðinu var fremur einföld en til þess þurfti Niemann vissulega að hitta á nokkra lipra taktíska leiki. Skákin gekk þannig fyrir sig:
St. Louis 2022; 3. umferð:
Magnús Carlsen – Hans Niemann
Nimzoindversk vörn
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. g3 0-0 5. Bg2 d5 6. a3 Bxc3+ 7. bxc3 dxc4 8. Rf3 c5 9. 0-0 cxd4 10. Dxd4 Rc6 11. Dxc4 e5 12. Bg5 h6 13. Hfd1 Be6 14. Hxd8 Bxc4 15. Hxa8 Hxa8 16. Bxf6 gxf6 17. Kf1 Hd8 18. Ke1 Ra5 19. Hd1 Hc8 20. Rd2 Be6 21. c4 Bxc4 22. Rxc4 Hxc4 23. Hd8+ Kg7 24. Bd5 Hc7 25. Ha8 a6 26. Hb8 f5 27. He8 e4 28. g4 Hc5 29. Ba2 Rc4 30. a4 Rd6 31. He7 fxg4 32. Hd7
(Sjá stöðumynd 1)
32. … e3 33. fxe3 Re4 34. Kf1 Hc1+ 35. Kg2 Hc2 36. Bxf7 Hxe2+ 37. Kg1 He1+ 38. Kg2 He2+ 39. Kg1 Kf6 40. Bd5 Hd2 41. Hf7+ Kg6 42. Hd7
42. … Rg5 43. Bf7+ Kf5 44. Hxd2 Rf3+ 45. Kg2 Rxd2 46. a5 Ke5 47. Kg3 Rf1+ 48. Kf2 Rxh2 49. e4+ Kxe4 50. Be6 Kf4 51. Bc8 Rf3 52. Bxb7 Re5 53. Bxa6 Rc6 54. Bb7 Rxa5 55. Bd5 h5 56. Bf7 h4 57. Bd5
– og hvítur gafst upp um leið. Riddarinn kemst í spilið eftir 57. … Ke5 og þá er eftirleikurinn auðveldur.
2. Uppgangur Niemanns á skáksviðinu sé afar óvenjulegur.
En framfarir á skáksviðinu koma oft í stökkum. Mörg dæmi finnast í skáksögunni um slíkt og Bandaríkjamenn minnast þess að fyrstu bandarísku skákstig Bobbys Fischers, fyrir daga tölvuforrita og hugbúnaðar, stóðu í 1.727 stigum. Hann var 12 ára. Tveimur árum síðar, 14 ára gamall, varð hann skákmeistari Bandaríkjanna. Hann hafði hækkað um 900 elo-stig.
3. Að Niemann hafi ekki sýnt merki taugaspennu í krítískum stöðum né heldur einbeitt sér.
Í stuttu máli er yfirleitt ómögulegt að lesa eitthvað út úr hegðan manna eða líkamstjáningu við skákborðið við fyrstu kynni.
Danskur skákmaður mætti í kjól í alþjóðakeppni fyrir meira en 50 árum. Hvað mátti lesa út úr því? Magnús boðar í yfirlýsingu sinni einhvers konar „viðskiptabann“ á hinn 19 ára gamla Niemann, þ.e. að hann muni ekki tefla við hann né aðra þá sem uppvísir hafa orðið að svindli. Slaufunarmenning er ekki með öllu óþekkt í skáksögunni. Aljékín gaf Capablanca ekki kost á öðru einvígi eftir heimsmeistaraeinvígið í Buenos Aires árið 1927 og Sovétmenn tefldu ekki á mótum með Kortsnoj frá tímabilinu 1976-1983.
Skákþættir Morgunblaðsins eru birtir á Skák.is u.þ.b. viku eftir að þeir birtast í Morgunblaðinu. Skákþáttur þessi birtist 1. október 2022.















