Laugardaginn 29. október stendur Skáksamband Íslands fyrir þremur stuttum fræðsluerindum. Erindin verða haldin á Hótel Natura og eru hluti af skákhátíðinni í tengslum við HM í slembiskák.
Dagskráin er sem hér segir:
11:30 Bekkjar/hópstjórnun
- Stefán Bergsson æskulýðsfulltrúi Skáksambandsins og grunnskólakennari
12:00 Stelpur í skák
- Jóhanna Björg Jóhannsdóttir landsliðskona í skák og skákkennari
12:30 Skipulag skákkennslustunda
- Björn Ívar Karlsson skákennari og yfirþjálfari Skákdeildar Breiðabliks
Öllum er frjálst að mæta, þátttaka er ókeypis og ekki þarf að skrá sig.
Sérstaklega eru allir þeir sem koma að skákkennslu/skákþjálfun barna og unglinga boðin velkomin.
Tilvalið er að kíkja á eitthvert erindanna og stúlkumót Skákskólans í sömu ferð en það hefst 11:00.
- Auglýsing -















