Íslensku krakkarnir náðu sínum besta degi í sjöttu umferð á Evrópumóti ungmenna í Antalya í Tyrklandi. Alls komu 9,5 vinningur í hús í skákunum 16 og fleiri hefðu með réttu átt að detta í hús!

Matthías Björgvin, Gunnar Erik, Adam, Benedikt Þórisson, Guðrún Fanney, Katrín María og Iðunn unnu öll sínar skákir. Jafntefli gerðu Sigurður Páll, Mikael Bjarki, Ingvar Wu, Benedikt Briem og Alexander Domalchuk-Jonasson. Mikael Bjarki var hársbreidd frá því að landa sigri í sinni skák en andstæðingur hans varðist með kjafti og klóm og hékk á jafntefli.

Iðunn Helgadóttir vann sína þriðju skákí röð í U16 stúlkna, takk fyrir! Iðunn hafði aftur hvítt eins og í gær og nú gegn Kapolkova (1776) frá Slóvakíu. Iðunn beitti sömu byrjun og í gær og nánast sama formúla að sigrinum. Sóknin á kóngsvæng var aftur of sterk, vel gert hjá Iðunni.

Matthías Björgvin Kjartansson náði sínum þriðja vinningi í röð, rétt eins og Iðunn. Skákin fór eins og lagt var upp með – ein af þessum eldhúsborðsskákum. Matthías tefldi hliðarafbrigði gegn slavneskri vörn Slóvenans Kozlovic (1914). Afbrigði þetta hefur verið sérlega vinsælt meðal skákmanna í sveitarfélagi á höfuðborgarsvæðinu þar sem gott er að búa. Matthías fékk alla stöðuna og andstæðingur hans gerði illt verra og lék af sér manni. Matthías vann af öryggi úr yfirburðunum.

Benedikt Þórisson hafði hvítt gegn Uruci (1473) frá Kósóvó. Það var ljóst fyrir skákina að Uruci þessi hafði óhefðbundinn byrjanastíl og því lagði Benedikt upp með að nýta sér það. Það kom á daginn, því byrjanataflmennska Uruci var í hæsta máta vafasöm. Benedikt gerði allt rétt, nýtti hugmyndirnar sem hann hafði skoðað fyrir skákina og vann öruggan sigur.

Gunnar Erik Guðmundsson hafði svart gegn Tyrkjanum Anacak (1992). Tyrkinn tefldi sjaldgæft afbrigði gegn Sikileyjarvörn Gunnars Eriks en okkar maður lét ekki slá sig út af laginu, lék eðlilegum leikjum og fékk fína stöðu. Eftir miklar flækjur í miðtaflinu fékk Anacak eitt tækifæri til þess að snúa skákinni sér í vil en missti af því. Í framhaldinu vann Gunnar Erik lið, komst út í unnið endatafl og innbyrti sigurinn af öryggi.

Adam Omarsson hafði hvítt gegn Finnanum Viktor Kulmala (1064). Það var ljóst strax í byrjun skákarinnar að mikill styrkleikamunur var á keppendum. Finninn lék af sér peði og svo skiptamun og það eina sem Adam þurfti að gera var að fórna skiptamun til baka og enda tveimur peðum yfir í endatafli sem hann vann auðveldlega.

Katrín María Jónsdóttir vann góðan sigur með svörtu gegn hinni belgísku Pinet (1217). Upp kom óhefðbundin byrjun og Pinet fékk heldur betra tafl. En Pinet urðu á taktísk mistök eftir byrjunina og Katrín María vann peð með millileik. Eftir uppskipti á mönnum og einföldun á stöðunni, þar sem Pinet fékk engin tækifæri til þess að komast aftur inn í skákina, sigldi Katrín María sigrinum heim af öryggi. Katrín María hefur farið vaxandi á mótinu.

Guðrún Fanney Briem vann hina tyrknesku Pehlivan (1123). Tyrkneskir keppendur hafa vakið athygli fyrir góða frammistöðu á mótinu til þessa. Pehlivan stóð til vinnings framan af miðtaflinu en Guðrún Fanney barðist eins og ljón (höfum við einhvern tímann séð það áður hjá henni?). Aðgerðir Guðrúnar Fanneyjar á kóngsvængnum slóu ryki í augu þeirrar tyrknesku sem lék af sér og taflið snérist við. Baráttusigur.

Annars er það helst að frétta frá Tyrklandi að foreldrahópurinn, sem er fjölmennur og hefur það annars prýðilegt í sólinni, hefur komist að því að tyrkneska handsápan er ágæt að mörgu leyti. Hefur hún til þessa náð blettum eftir súkkulaðisjeik og tómatssósu ásamt fótboltaskrámum úr íslensku keppnistreyjunum. Meira að segja íslensku nærfötin glansa sem aldrei fyrr. Hrifning foreldranna á sápunni hefur orðið til þess að umræður um innflutning á henni eru hafnar.

Krakkarnir hafa verið duglegir að nýta fína aðstöðu hér á hótelinu til ýmissa athafna. Sundlaug, sundlaugagarður og sjórinn hafa verið teknir af ýmsum og Benedikt Briem peppaði sig upp fyrir skák dagsins með því að rífa aðeins í lóðin í ræktinni, fá þetta góða „pump“ sem Arnold Schwarzenegger talar svo vel um. Foreldrar hafa nýtt glæsilega golf aðstöðu á svæðinu og hafa það bara nokkuð gott hér!

Á kvöldin hefur knattspyrnuvöllur á svæðinu verið nýttur þannig að krakkarnir eru duglegir að ná sér í smá hreyfingu. Í kvöld var svo tennisvöllurinn nýttur, Benedikt Briem mætti hér til Tyrklands með eigin spaða en það dugði ekki til sigurs gegn spaðavönum þjálfara íslenska liðsins sem vann 6-0, 6-0 sigur.

Pörun 7. umferðar sem hefst 12:00 á morgun. Aleksandr verður áfram í beinni útsendingu á morgun og mætir rússneskum Fide-meistara.


Bestu kveðjur heim,
Ingvar Þór og Björn Ívar

Heimasíða mótsins
Beinar útsendingar
Chess-results

- Auglýsing -