HM í atskák er rétt í þessu að hefjast í Almaty í Kasakstan. Mótið fer fram 26.-28. desember. Dagana 29. og 30. desember fer fram í HM í hraðskák. Taflmennskan hefst kl. 9 í atskákinni en kl. 8 í hraðskákinni.
Bein lýsing
Meðal keppenda eru flestir sterkustu skákmenn heim. Þar á meðal Magnús Carlsen, Hikaru Nakamura, Fabiano Caruana, Ian Nepomniachiatchi og núverandi heimsmeistari, Nodirbek Abdusattorov. Í kvennaflokki má finna flestar sterkustu skákkonur heims. Alexandra Kosteniuk, Kateryna Lagona, Tan Zhongyi og Aleksandra Goryachkina.
Meðal annarra keppenda má finna engan annan en hinn umdeilda Hans Niemann en þetta er í fyrsta skipti sem MC og Niemann taka þátt í sama móti síðan atvikið umdeild í St. Louis. Hvernig mun heimsmeistarinn bregðast við verði þeir paraðir saman?
Í dag eru tefldar fimm fyrstu umferðirnar í opna flokknum af þrettán og fyrstu fjórar af ellefu í kvennaflokknum.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (Opinn flokkur)
- Beinar útsendingar (Kvennaflokkur)
- Bein lýsing (FIDE)
- Bein lýsing (Chess24)


















