Jóhanna og Lenka tefla um Íslandsmeistaratitil kvenna í dag!

Íslandsmót kvenna í hraðskák, fer fram fer miðvikudaginn, 28. desember í húsnæði Skáksambands Íslands, Faxafeni 12, og hefst kl. 17:30. Skákkonur eru hvattar til að fjölmenna á þetta annað Íslandsmót kvenna i hraðskák!

Nú þegar hafa 10 skákkonur skráð til leiks og þar á meðal flestar sterkustu skákkonur landsins. Ánægjulegt er að sjá Guðfríði Lilju Grétarsdóttur og Hörpu Ingólfsdóttur meðal keppenda en afar langt er síðan þær tefldu síðast opinberlega.

Tefldar verða sjö umferðir með umhugsunartímanum 4+2.

Verðlaun eru sem hér segir:

  1. 15.000
  2. 10.000
  3.   5.000

Unglingaverðlaun

Þrenn bókaverðlaun, eða skákmyndbönd að verðmæti 5.000 hvert.

Engin þátttökugjöld.

- Auglýsing -