Nodbirek Abdusattorov (2713) hélt vinningsforskoti á Tata Steel-mótinu með jafntefli gegn Levon Aronian (2735) í áttundu umferð gær. Úsbekinn ungi hefur 6 vinninga að loknum átta umferðum. Anish Giri (2764) og Wesley So (2760) sem gerðu báðir jafntefli í gær eru í 2.-3. sæti með 5 vinninga.
Magnús Carlsen (2859) vann Fabiano Caruana (2766). Önnur sigurskákin í röð. Norski heimsmeistarinn hefur 4½ vinning og er líklegur til að blanda sér í toppbaráttuna. Kominn í 4.-7. sæti.
✅| Round 8 is done! Rapport, Van Foreest and Gukesh win their 1st games, while Abdusattorov stays one full point clear in the Masters. In the Challengers Yilmaz beats Sindarov and closes the gap to Donchenko to half a point. #TataSteelChess pic.twitter.com/uUUngjqHM0
— Tata Steel Chess (@tatasteelchess) January 22, 2023
Frídagur er í dag. Níunda umferð fer fram á morgun. Abdusattorov mætir Vincent Keymer (2696), Carlsen teflir við Gukesh (2725), Giri sest andspænis Ding Liren (2811) og So freistar þess að vinna Maghsoodloo. (2719).
Áskorendaflokkur (Challengers)

Alexander Donchenko (2627) er efstur með 6 vinninga. Mustafa Yilmaz (2609) og úsbekinn ungi Javokhir Sindarov (2654) eru í 2.-3. sæti með 5½ vinning.
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar (hefjast flestar kl. 13:15)
















