Atskákmót hjá TR í kvöld. Tefldar eru fimm skákir og tímamörkin eru 10 mínútur á skákina að viðbættum 5 sekúndum á hvern leik. Teflt er í einum flokki. Mótin eru öllum opin og reiknuð til alþjóðlegra atskákstiga. Teflt er í félagsheimili TR, Faxafeni 12 og taflmennskan hefst stundvíslega klukkan 19:30. Það þarf ekki að skrá sig fyrirfram, nóg að mæta á staðinn. Umsjón með mótunum hafa þeir Eiríkur K. Björnsson og Gauti Páll Jónsson. Þátttökugjald er 500kr. en frítt er fyrir 17 ára og yngri.

Veitt eru verðlaun, 3000 króna inneign í Skákbúðina, fyrir sigurvegara mótsins, og fyrir bestan árangur miðað við eigin stig (rating performance).

————

Gauti Páll Jónsson átti ekki í teljandi vandræðum með að tryggja sér sigur á þriðja Þriðjudagsmóti ársins þ. 17. janúar síðastliðinn. Í síðustu umferð dugði honum jafntefli eins og skákstjóri, sem jafnan er talsmaður friðar og sátta, benti honum á. Hann skeytti þó engu um það en sigldi enn einum vinningnum átakalítið í hús og hirti þar með óskorað fyrsta sæti. Í öðru sæti og jafnframt sá sem varð hæstur miðað við frammistöðustig, varð síðan Sigurbjörn Hermannsson sem kastaði þar mörgum stigahærri skákmönnum aftur fyrir sig. Sigurbjörn tapaði fyrir Gauta í fyrstu umferð en leit ekki til baka eftir það og endaði með 1785 frammistöðustig fyrir mótið og hækkar um rétt tæp 100 stig.

Öll úrslit og stöðu Þriðjudagsmótsins má nálgast hér á chess-results.

Næsta mót verður 24. janúar og hefst, eins og jafnan, stundvíslega klukkan 19:30, í Skákhöll TR í Faxafeni. Fimm umferðir; 10 mínútur og 5 sekúndna viðbótartími.

Af heimasíðu TR.

- Auglýsing -