
Alþjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2458) gerði jafntefli við Benedikt Briem (2100) í áttundu og næstsíðustu umferð Skákþings Reykjavíkur sem fram fór í gær. Vignir hefur 6½ vinning og hefur hálfs vinnings forskot fyrir lokaumferðina sem fram fer á sunnudaginn.
Fjórir skákmenn hafa 6 vinninga. Það eru auk Benedikts, nafnarnir Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2352), Alexander Oliver Mai (2119) og Jóhann Ingvason (2132). Nafnarnir standa best í baráttu um skákmeistaratitil Reykjavíkur. Hinir í efstu sætunum hafi hvorki lögheimili í Reykjavík né eru í reykvísku taflfélagi.
Aleksandr vann Gauta Pál Jónsson (2045), Johann vann Arnar Milutin Heiðarsson (2032), og Alexander Oliver hafði betur gegn Davíð Kolka (1901).
Níunda og síðasta umferð fer fram á sunnudaginn. Pörun liggur ekki fyrir þegar þetta er ritað.















