Verðlaunahafar á mótinu. Mynd: Daði Ómarsson.
Helgina 10.-12. febrúar fór fram þriðja mót Bikarsyrpu Taflfélags Reykjavíkur.
Eftir sjö umferðir endaði Sigurður Páll Guðnýjarson einn með 6.5 vinning og leyfði aðeins jafntefli við Örvar Hólm Brynjarsson.
Engilbert Viðar Eyþórsson og Örvar enduðu síðan jafnir með 5.5 vinning en Engilbert var yfir á stigum.
Efst stúlkna var Katrín María Jónsdóttir með 5 vinninga. Emilía Embla B. Berglindardóttir og Sigrún Tara Sigurðardóttir enduðu síðan báðar með 4.5 vinning en Emilía var hærri á stigum.
Taflfélag Reykjavíkur þakkar öllum keppendum fyrir þátttöku á mótinu. Næsta mót verður auglýst fljótlega!
- Auglýsing -