Alþjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2461) er eini fulltrúi Íslands á EM einstaklinga sem fram fer í Vrnjacka Banja í Serbíu.
Vignir tapaði fyrir búlgarska stórmeistarann Ivan Cheparinov (2661) í 2. umferð í gær. Vignir tefldi Berlínarvörn og svo fór að Búlgaranum tókst að kreista fram vinning að langa baráttu.
Þriðja umferð fer fram í dag. Vignir teflir við ungan serbneska FIDE-meistara. Sá heitir Aleksa Micic (2273). Skák dagsins verður ekki í beinni.
Gríðarleg þátttaka er á mótinu en þátt taka 484 skákmenn frá 40 löndum. Þar af eru 126 stórmeistararar. Vignir er nr. 152 í stigaröð keppenda en 23 efstu ávinna sér keppnisrétt í heimsbikarmótinu í skák.
- Auglýsing -
















