Íslenska ungmennaliðið lagði lið Berlínar í lokaumferðinni á Chess Mates mótinu á Írlandi. Krökkunum tókst því að enda mótið á góðum nótum með fyrsta liðssigrinum á mótinu. Keppt var í tveimur fjögurra liða riðlum, allir við alla á tíu borðum og svo undanúrslit/umspil og loks teflt um sæti í lokaumferðinni. Lukkudísirnar voru ekki á okkar bandi í riðlinum og því fór sem fór.

Sigur vannst loks í lokaumferðinni eins og áður sagði. Íslenska liðið endaði á að leggja Berlínarbúana að velli 7-3.

Arnar Milutin kórónaði góða frammistöðu með sigri í lokaumferðinni og fékk hann 4/5 á mótinu og nálgast 2100 stiga múrinn óðfluga. Þorsteinn Jakob, Ingvar, Iðunn og Engilbert unnu líka sínar skákir í lokaumferðinni.

Vel gekk á efstu borðunum í lokaumferðinni
Tóbías komst á blað í lokaumferðinni með góðu jafntefli.
TR-ingarnir Iðunn og Ingvar unnu bæði í lokaumferðinni.
Engilbert og Sigþór rétt fyrir lokaumferðina.

Skákir lokaumferðarinnar:

Sveit Parísar vann sigur á mótinu eftir úrslitaviðureign við lið Monaco. Athyglisvert var að fulltrúar undirbúningsnefndar Ólympíuleikana voru í för með franska liðinu. París mun halda þarnæsta Chess Mates mót í mars 2024 en næsta mót er í október í Rotterdam. Ísland hefur áhuga á að taka þátt á þessum mótum og verður að koma í ljós hvernig gengur að komast inn í batteríið en Ísland var gestalið að þessu sinni.

Að loknu móti fóru flest lið af stað til síns heima en íslenska liðið hafði loka góðan frítíma á sunnudeginum eftir mikla törn. Ákveðið var að skella sér til hins svokallaða Trim Castle, kastali frá 1187 en þar voru meðal annars tekin upp atriði í kvikmyndinni Braveheart.

Trim Castle
Trim Castle
Hluti íslenska hópsins í uppstilltri mynd við Trim Castle
Meirihluti foreldrahópsins, sem var einstaklega skemmtilegur og samheldinn.

Eftir Trim Castle var haldið aftur til Navan (sem N.B. er heimabær Pierce Brosnan) og þar var horft á knattspyrnuleik Liverpool og Newcastle. Í kjölfar þess leik var ákveðinn drykkur uppseldur í bænum!

Að lokum var sameiginlegur og vel heppnaður kvöldverður. Mjög skemmtilegt mót eins og áður sagði og vonandi er þetta verkefni sem er komið til að vera.

Mótið á chess-results

Lichess útsendingar (skákir mótsins)

- Auglýsing -