Reykjavíkurskákmótið fer fram í Hörpu í 29. mars – 4. apríl. Mótið í ár er í boði Kviku eignastýringar og Brims.
Mótið er það 37. í sögunni en fyrsta mótið fór fram árið 1964. Ótrúleg þátttaka er á Reykjavíkurskákmótinu í ár og eru um 400 keppendur skráðir til leiks. Til samanburðar tóku 245 þátt í fyrra og eldra met er frá 2015 þegar 272 skákmenn tóku þátt.
Keppendurnir eru frá um 47 löndum. Um 85 íslenskir skákmenn taka þátt og eru því nærri 80% keppenda að koma erlendis frá. Þjóðverjar eru fjölmennastir erlendu gestanna en þeir erum 60 talsins. Gera má að gistinætur sem fylgja mótinu séu um 4.000 talsins.
Keppendur koma meðal annars frá löndum eins og Kasakstan, Singapore, Ástralíu og Sri Lanka.
Aldrei hafa fleiri stórmeistarar tekið þátt en þeir eru 34 talsins. Sex þeirra eru íslenskir. Að sjálfsögðu er nýjasti íslenski stórmeistarinn, Vignir Vatnar Stefánsson meðal keppenda. Af íslensku stórmeisturunum taka auk Vignis þátt þeir Hjörvar Steinn Grétarsson, Hannes Hlífar Stefánsson, Jóhann Hjartarson, Guðmundur Kjartansson og Þröstur Þórhallsson sem og Lenka Ptácníková, stórmeistari kvenna.
Stigahæstur keppenda er úkraínska goðsögnin Vasyl Ivanchuk. Næstir í stigaröð keppenda eru Svíinn Nils Grandelius og hinn norski Aryan Tari sem hefur verið lengi verið næstbesti skákmaður Norðmanna og reyndar Norðurlandanna á eftir heimsmeistaranum, Magnús Carlsen.
Allnokkrar samfélagsstjörnur skákheimsins mæta á staðinn og þeirra þekktust er kanadíska skákkonan Alexandra Botez sem hefur um 1,3 milljónir fylgjenda á Youtube. Hún teflir og verður skákum hennar streymt á netinu.
Skák er fyrir alla og það endurspeglar aldursmunurinn á yngsta og elstu keppendum. Elstu keppendur mótsins eru 74 ára (f. 1949) en þeir yngstu eru á sjöunda ári (f. 2016).
Skákskýringar á verða alla daga í Hörpu í umsjón okkar sterkustu skákmeistara sem ekki taka þátt og þar nefna nafnana Helga Ólafsson og Helga Áss Grétarsson
Mótið verður formlega sett miðvikudaginn, 29. mars, kl. 15:00. Borgarstjórinn, Dagur B. Eggertsson, setur mótið og leikur fyrsta leik þess.
Áhorfendur eru ávallt velkomnir á skákstað og er aðgangur ókeypis í boði Kviku eignastýringar og Brims.
Hægt verða að fylgjast með um 50 skákum beint á netinu í hverri umferð á heimasíðu mótsins, www.reykjavikopen.com.














