Frá mótinu í fyrra.

Tvær umferðir fara fram á Reykjavíkurskákmótinu í dag sem fram fer í boði Kviku eignastýringar og Brims.

Fimmta umferð mótsins hefst kl. 9 og sjötta umferð kl. 16.

Í fimmtu umferð teflir Hjörvar Steinn Grétarsson (2538) sem er efstur Íslendinga með 3½ vinning við tyrkneska stórmeistarann (ekki þýska fótboltamanninn) Emre Can (2600).

Pörun 5. umferðar

Skákskýringar í umsjón alþjóðlega meistarans Dags Ragnarssonar hefjast kl. 11. Skákskýringar sjötta umferðar hefjast um kl. 18.

Rétt er að minna á að á sunnudaginn verður norski skákrithöfundurinn Øystein Brekke með fyrirlestur um bók sína um Friðrik Ólafsson kl. 14.

 

- Auglýsing -