Indverjinn Abhijeet Gupta og Frakkinn Maxime Lagarde eru í góðri stöðu í efsta sæti með 5,5 að loknum 6 umferðum á Reykjavíkurskákmótinu í Hörpu. Gupta vann fyrstu fimm skákir sínar á mótinu en leyfði loks jafntefli í sjöttu umferðinni en tvær umferðir voru tefldar í dag, laugardag. Gupta virðist kunna vel við sig á Íslandi en hann hefur tvívegis áður lent í efsta sæti á mótinu.
Dagurinn gekk ekki vel hjá heimavarnarliðinu. Hjörvar Steinn Grétarsson sem var efstur Íslendinga fyrir daginn með 3,5 vinning tapaði báðum skákum sínum og er að heltast eilítið úr lestinni fyrir vikið. Guðmundur Kjartansson er nú orðinn efstur Íslendinga með 4,5 vinning úr skákunum 6. Kandídatameistarinn Bárður Örn Birkisson lagði pólska stórmeistarann Grzegorz Gajewski að velli sem eru frábær úrslit. Bárður er ásamt nokkrum öðrum Íslendingum með 4 vinninga.
Hin 6 ára gamla Aría Björk Björk Daníelsdóttir vakti verðskuldaða athygli í fyrri umferð dagsins þegar hún vann sína skák og varð þar með yngsti keppandi sögunnar til að vinna kappskák á Reykjavíkurskákmótinu.
Sjöunda umferiðn á morgun hefst klukkan 15:00 og skákskýringar á staðnum um 17:00,
- Auglýsing -