Þriðju einvígisskák þeirra Ian Nepomniachtchi og Ding Liren lauk með jafntefli nú í dag. Nepo stýrði hvítu mönnunum og kom eilítið á óvart með því að beita drottningarpeði sínu, 1.d4, í fyrsta leik. Nepo er kóngspeðsmaður þó hann hafi teflt aðrar byrjanir seinni ár.
Ding Liren svaraði með drottningarbragði og kemur það lítið á óvart enda hefur sú byrjun verið á boðstólnum í flestum ef ekki öllum heimsmeistaraeinvígjum.
Kínverjinn tók á sig stakt peð en fékk ágætis spil þegar hann kom Rússanum á óvart með því að taka mann til baka með riddara á d7.
Svartur stóð ef til vill eilítið betur en aldrei nóg til að reyna eitthvað af einhverju viti. Eina áhugaverða augnablikið var kannski hvort að svartur gæti tekið á a3 í eftirfarandi stöðu.
Mikil uppskipti myndu fylgja í kjölfarið en hvítur vinnur peðið strax til baka og jafntefli líklegast.
Nokkrum leikjum síðar þvingaði Nepo fram jafntefli og sverðin voru slíðruð.
Örugg skák hjá Ding sem sýndi mikil batamerki bæði á taflmennsku og fasi og gaf það einnig til kynna á blaðamannafundi.
Ding Liren: My friends helped me to deal with my emotional problems. Now I feel more comfortable on the stage." #NepoDing pic.twitter.com/8DkUTPUMMT
— International Chess Federation (@FIDE_chess) April 12, 2023
Skákin:

Skýringar frá Dínu Belenkayu:
- Heimasíða heimsmeistaraeinvígisins
- Beinar lýsingar (FIDE)
- Beinar útsendingar (Chess24)
- Beinar lýsingar (Chess.com)














