NM stúlkna var framhaldið í gær með 2. og 3. umferð í Helsingborg í Svíþjóð. Sex íslenskar taka þátt.
Allar íslensku stúlkurnar eru komnar á blað. Iðunn Helgadóttir er efst í b-flokki (u17) með fullt hús.
Tvær síðustu umferðirnar fara fram í dag. Sú fyrri hófst kl. 7 og sú síðari hefst kl. 13.
B-flokkur (U17)
Iðunn Helgadóttir (1622) hefur fullt hús en Katrín María Jónsdóttir (1091) hefur hálfan vinning.
Iðunn teflir nú verið hina norsku Elma Selvik (1623) sem er stigahæst keppenda.
C-flokkur (U13)

Guðrún Fanney Briem (1575) hefur 2 vinninga og er 3.-8. sæti.
Tara Líf Ingadóttir (1023), Sigrún Tara Sigurðardóttir og Emilía Embla B Berglindardóttir (1108) hafa 1 vinning.
Allar skákir mótsins eru sýndar beint.
- Auglýsing -

















