Fyrsta umferð Íslandsmótsins í skák hefst kl. 15 í dag. Tvær afar mikilvægar skákir fara fram en 4 af 5 stigahæstu keppendum mótsins mætast innbyrðis í dag. Íslandsmeistari síðustu tveggja ára, Hjörvar Steinn Grétarsson, hefur hvítt gegn Jóhanni Hjartarsyni.
Í hinni aðalskák umferðarinnar mætast Íslandsmeistarinn þrettánfaldi Hannes Hlífar Stefánsson og Guðmundur Kjartansson. Guðmundur hefur unnið Íslandsmótið á þriggja ára fresti síðan 2014 og því ætti aftur að vera kominn tími á Guðmund ef sú regla heldur sér.
Í umferð dagsins mætast:
- GM Hjörvar Steinn Grétarsson (2539) – GM Jóhann Hjartarson (2466)
- GM Hannes Hlífar Stefánsson (2521) – GM Guðmundur Kjartansson (2402)
- Jóhann Ingvason (2076) – GM Henrik Danielsen (2501)
- IM Hilmir Freyr Heimisson (2353) – GM Vignir Vatnar Stefánsson (2470)
- GM Bragi Þorfinnsson (2431) – IM Dagur Ragnarsson (2346)
- FM Alexksandr Domalchuk-Jonasson (2338) – WGM Lenka Ptácníková (2099)
Keppendalistinn er sem hér segir (skákstig og íslandsmeistaratitlar í opnum flokki í sviga)
- Hjörvar Steinn Grétarsson (2539-2) – stórmeistari
- Hannes Hlífar Stefánsson (2521-13) – stórmeistari
- Henrik Danielsen (2501-1) – stórmeistari
- Vignir Vatnar Stefánsson (2470-0) – stórmeistari
- Jóhann Hjartarson (2466-6) – stórmeistari
- Bragi Þorfinnsson (2431-0) – stórmeistari
- Guðmundur Kjartansson (2402-3) – stórmeistari
- Hilmir Freyr Heimisson (2353-0) – alþjóðlegur meistari
- Dagur Ragnarsson (2346-0) – alþjóðlegur meistari
- Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2338-0) – FIDE-meistari
- Lenka Ptácníková (2099-0) – stórmeistari kvenna
- Jóhann Ingvason (2076-0)
Glæsileg umgjörð verður á mótinu. Allir skákirnar í beinni (þó með 15 mínútna seinkun) og beinar lýsingar í umsjón okkar færustu lýsenda.
Útsendingar á netinu hefjast því ekki fyrr en kl. 15:15.
Styrktaraðilar mótsins eru
- Hafnarfjarðarkaupstaður
- Algalíf
- Teva
- Lengjan
- Guðmundur Arason
- MótX
Tenglar
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Skákvarpið
- Beinar útsendingar (Chess.com)
- BEinar útsendingar (Chess24)
- Beinar útsendingar (Chessbase)
- Beinar útsendingar (kingwatcher)


















