Fyrsta umferð Íslandsmótsins í skák lauk í dag. Þrjár skákir unnust í umferðinni og allar með svörtu mönnunum!
Í umferð dagsins mættust:
IM Hilmir Freyr Heimisson (2353) – GM Vignir Vatnar Stefánsson (2470)

Hilmir hóf taflið á 1.e4 og Vignir svaraði með Berlínar-vörninni. Vignir tefldi hratt og þekkti sitt vel og snemma skiptist upp á mikið af liði og jafntefli var boðið. Þeir félagar þekkjast vel og stúdera oft saman og stundum erfitt að klekkja á mönnum í byrjuninni þegar menn þekkjast svona vel.
Jóhann Ingvason (2076) – GM Henrik Danielsen (2501)

Jóhann er eini titillausi keppandinn í flokknum og ljóst að róðurinn verður erfiður. Jóhann hefur þó áður teflt í landsliðsflokki og veit því alveg út í hvað hann er að fara. Henrik hefur ekki teflt í landsliðsflokki í ein 8 ár.
Catalan byrjunin varð einhvern veginn að Czech Benoni eftir hægar tilfæringar í byrjuninni en Jóhann gaf líklega frá sér strategískt góða byrjun með því að gefa svartreitabiskupinn. Eftir annan vafasaman leik í miðtafilnu, g4 þá endaði Henrik með góðan riddara gegn slæmum biskup og flóðgáttir opnuðust að hvíta kóngnum.
FM Alexksandr Domalchuk-Jonasson (2338) – WGM Lenka Ptácníková (2099)

Aleksandr hefur átt einstaklega gott ár og er að tefla í landsliðsflokki í fyrsta skipti. Hann fékk fína stöðu í byrjuninni og hafði þægilegra tafl í miðtaflinu. Hvíta staðan var einhvern veginn alltaf kortér í gegnumbrot en Lenka varðist einstaklega vel og gaf hvítum ekki dauðafærið. Eftir mikið tímahrak var það svo 40. leikurinn sem varð afdrifaríkur og Aleksandr lék af sér skákinn í einum leik. Fínn sigur hjá Lenku með svörtu.
GM Hjörvar Steinn Grétarsson (2539) – GM Jóhann Hjartarson (2466)

Flestir voru spenntastir fyrir þessari viðureign fyrir umferðina. Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri lék fyrsta leiknum fyrir Hjörvar, 1.e4. Eilítið óvænt hjá Hjörvari. Sikileyjarvörn varð fyrir valinu hjá Jóhanni. Jóhann virtist taka yfir frumkvæðið með …b5!? framrásinni en náði ekki að vinna úr því. Fljótlega leystist skákin upp í endatafli þar sem Hjörvar hafði betri færi en aldrei nóg til að ógna Jóhanni.
GM Bragi Þorfinnsson (2431) – IM Dagur Ragnarsson (2346)

Bragi ætlar sér stóra hluti á mótinu samkvæmt yfirlýsingum á Útvarpi Sögu. Dagur kom inn á síðustu stundu en lætur strax finna fyrir sér sem best klæddi keppandinn…og það er ekki einu sinni mjótt á munum þar!
Frönsk vörn, Bragi virtist fá fína stöðu en Dagur náði að redda sér…seigt í frakkanum. Bragi hélt rými en hættan var að hann myndi missa tökin og svartur nýta sér holur bakvið peðin. Þetta virtist vera að raungerast í lokin þegar Dagur fékk dauðafæri á að stela vinningnum en í dauðafærinu tók hann óskiljanlega ákvörðun og skipti upp í mislitt biskupaendatafl sem var algjörlega steindautt.
Baráttuskák og kannsk sanngjörn úrslit á endanum.
GM Hannes Hlífar Stefánsson (2521) – GM Guðmundur Kjartansson (2402)

Þungaviktarskák hér á ferð. Þrettánfaldur Íslandsmeistari með hvítt og Guðmundur sem virðist vinna á 3ja ára fresti með svart. Guðmundur vann líka síðast þegar mótið fór fram í Hafnarfirði. Er sagan að endurtaka sig?
Guðmundur tefldi byrjunina vel og fékk eitthvað betra. Eftir erfitt miðtafl náði Hannes að redda sér í endatafl sem bara hlýtur að vera jafntefli. Eitthvað klikkaði þó í vörninni og Guðmundur náði með mikilli seiglu að kreysta fram vinning. Eitt peð eftir í lokin sem dugði til.
Glæsileg umgjörð verður á mótinu. Allir skákirnar í beinni (þó með 15 mínútna seinkun) og beinar lýsingar í umsjón okkar færustu lýsenda.
Útsendingar á netinu hefjast því ekki fyrr en kl. 15:15. Skýringar á milli 16 og 16:30.
Styrktaraðilar mótsins eru
- Hafnarfjarðarkaupstaður
- Algalíf
- Teva
- Lengjan
- Guðmundur Arason
- MótX
Tenglar
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Skákvarpið
- Beinar útsendingar (Chess.com)
- BEinar útsendingar (Chess24)
- Beinar útsendingar (Chessbase)
- Beinar útsendingar (kingwatcher)

















