Ný stjórn Skákdeildar Breiðabliks. Mynd: Breiðablik.

Á aðalfundi Skákdeildar Breiðabliks 25.apríl s.l. var kosin ný stjórn og Kristín Jónsdóttir tók við sem formaður af Heiðari Ásberg Atlasyni.

Stjórn Breiðabliks 2023-24:

Kristín Jónsdóttir formaður

Birkir Karl Sigurðsson

Brynjar Bjarkason

Halldór Grétar Einarsson

Jón Valentínusson

Heiðar Ásberg Atlason

Mörg spennadi verkefni eru framundan hjá deildinni sem varð tíu ára s.l. haust. Má þar nefna skákþjálfun sem er aðalsmerki félagsins, stuðningur við afreksungmenni, þróun meistaraflokksstarfsins, skólamót Kópavogs, Skákþing Kópavogs og árleg skákferð til Svíþjóðar.

- Auglýsing -