Önnur umferð Íslandsmótsins í skák hefst kl. 15 í dag. Tveri stórmeistaraslagir fara fram í dag. Okkar nýjasti stórmeistari, Vignir Vatnar Stefánsson (2470), hefur hvítt gegn Íslandsmeistara síðustu tveggja ára, Hjörvari Steini Grétarssyni (2539). Henrik Danielsen (2501) teflir við Braga Þorfinnssona (2431).

Í umferð dagsins mætast (vinningar í sviga):

  1. GM Vignir Vatnar Stefánsson (½) – GM Hjörvar Steinn Grétarsson (½)
  2. GM Henrik Danielsen (1) – GM Bragi Þorfinnsson (½)
  3. WGM Lenka Ptácníková (1) – GM Jóhann Hjartarson (½)
  4. GM Guðmundur Kjartansson (1) – IM Hilmir Freyr Heimisson (½)
  5. IM Dagur Ragnarsson (½) – GM Hannes Hlífar Stefánsson (0)
  6. FM Aleksandr Domalchuk-Jonasson (0) – Jóhann Ingvason (0)

Keppendalistinn er sem hér segir (skákstig og íslandsmeistaratitlar í opnum flokki í sviga)

  1. Hjörvar Steinn Grétarsson (2539-2) – stórmeistari
  2. Hannes Hlífar Stefánsson (2521-13) – stórmeistari
  3. Henrik Danielsen (2501-1) – stórmeistari
  4. Vignir Vatnar Stefánsson (2470-0) – stórmeistari
  5. Jóhann Hjartarson (2466-6) – stórmeistari
  6. Bragi Þorfinnsson (2431-0) – stórmeistari
  7. Guðmundur Kjartansson (2402-3) – stórmeistari
  8. Hilmir Freyr Heimisson (2353-0) – alþjóðlegur meistari
  9. Dagur Ragnarsson (2346-0) – alþjóðlegur meistari
  10. Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2338-0) – FIDE-meistari
  11. Lenka Ptácníková (2099-0) – stórmeistari kvenna
  12. Jóhann Ingvason (2076-0)

Glæsileg umgjörð verður á mótinu. Allir skákirnar í beinni (þó með 15 mínútna seinkun) og beinar lýsingar í umsjón okkar færustu lýsenda.

Útsendingar á netinu hefjast því ekki fyrr en kl. 15:15.

Styrktaraðilar mótsins eru

  • Hafnarfjarðarkaupstaður
  • Algalíf
  • Teva
  • Lengjan
  • Guðmundur Arason
  • MótX

Tenglar

- Auglýsing -