Næst síðasta umferð Íslandsmótsins í skák var full af dramatík. Alþjóðlegi meistarinn Hilmir Freyr Heimisson náði aftur hálfs vinnings forskoti á toppnum með ótrúlegum seiglusigri gegn Birni Hólm Birkissyni. Á sama tíma gerði Íslandsmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson jafntefli við stórmeistarann Hannes Hlífar Stefánsson. Sveiflurnar í öðrum skákum voru einnig ótrúlegar. Hilmir verður Íslandsmeistari vinni hann sína skák með hvítu gegn Bárði Erni Birkissyni á morgun.
Rennum yfir gang mála í þessari umferð:
GM Vignir Vatnar Stefánsson (6) – GM Hannes Hlífar Stefánsson (5½)

Skákin fór rólega af stað, drottningarbragð og lítið gerðist fram í 20. leik. Hannes með ívið betri tíma en ekkert sem skipti máli. Segja má að lítið hafi gerst í þessari skák…Vignir beið átekta en Hannes gaf eiginlega engin færi á sér. Ef eitthvað er var Hannes með ívið betra, Vignir tók smá séns en taphættan þó líklega aldrei til staðar. Jafntefli niðurstaðan og nú þurfti Vignir að treysta á hagstæð úrslit í skák Björns Hólms og Hilmis.
CM Björn Hólm Birkisson (2½) – IM Hilmir Freyr Heimisson (6)

Hilmir tefldi traustan Bogo-indverja, var greinilega staðráðinn í að reyna að halda mönnum inni á borðinu. Björn Hólm gaf sig ekkert með hvítu og staðan hélst í jafnvægi og smátt og smátt plokkuðst mennirnir út af borðinu. Taflið einfaldaðist frekar niður í fræðilegt jafntefli í hróksendtafli og Vignir gat farið að gera sér góðar vonir um aðstoð frá Birni.
Hilmir bjó til nokkra pytti fyrir Björn. Einn af þeim var hér þar sem 50.Kg5?? yrði svarað með 50…Hf6! og svartur er að vinna. Björn forðaðist það lék 50.Hc7. Áfram hélt Hilmi 50…Hb8 51.f6 Hb6!
Þrautseigjan bar árangur, Björn lék 52.Kg5?? sem er tapleikur. Eftir 52.f7 Hxg6+ eru enn pyttir fyrir hvítan en jafntefli með réttri taflmennsku. Hilmir tók peðið 52…Hxf6 og vinningurinn tryggður nokkrum leikjum síðar.
Sannarlega mikilvægur sigur fyrir Hilmi!
IM Dagur Ragnarsson (4) – IM Björn Þorfinnsson (3)

Skák þeirra Dags og Björn hófst sem drottningarbragð og framan af staðan alltaf örlítið betri á hvítt. Björn tók áhættusama ákvörðun í miðtaflinu.
25…f5?! skilur svart eftir með mjög veika peðastöðu og veikleika útum allt borð…auk verri kóngsstöðu. Menn svarts hinsvegar með ágætis virkni. Dagur fékk mun betri stöðu en Björn hélt taflinu gangandi eins og hægt var.
Hér lét Dagur plata sig í tímahraki 38.Hxe5?? og gildran hjá Bjössa var 38…Rc6! og við sjáum að drottningin er í vandræðum hjá hvítum! 39.He3 Hf8 40.He8 og þá er peð ofan í á f2 og svartur kominn með hartnær unnið tafl.
Sannaðist enn og aftur hið forkveðna: „Það er ekki nóg að vera með unnið“
Björn var ekki ósvipað Guðmundi gegn Hannesi í gær með kolunnið tafl, tölvurnar mest í -5. Einhvern veginn fann Bjössi ekki alveg „killerinn“ í stöðunni og Dagur hékk á floti. Eftir að komið var í endataflið var staðan orðin jafntefli fræðilega.
Hér er 68.a4! t.d. jafntefli skv. töflureiknum en 68.Bb7? sem Dagur lék tapar. Hér á svartur að gjöra svo vel og færa kóng sinn yfir á drottningarvænginn. Allir kóngsleikir yfir á f-línunni eru unnið tafl á svart. Þess í stað kom riddaraleikur og jafnteflið aftur „rétta matið“.
Dramtíkinni var þó ekki lokið…
Björn var hér svekktur að hafa misst skákina í jafntefli og lék of fljótt 73…h3?? sem tapar eftir 74.Kc2 sem er eiginlega ótrúlegt. 73…g3 heldur jafnteflinu.
Ótrúlegar sveiflur í þessari skák en sem betur fer skipti þessi skák litlu í stóra samhenginu, hvorugur átti séns á titlinum.
FM Örn Leó Jóhannsson (1½) – GM Guðmundur Kjartansson (4)

Einhverjar sviptingar voru framan af tafli en með tíð og tíma tók stórmeistarinn Guðmundur Kjartansson yfirhöndina. Hann náði að vinna tvö peð af Erni Leó og virtist ætla að sigla vinningnum heim örugglega. Úrvinnslan klikkaði þó eilítið í lokin.
56…Ke7? gaf hvítum möguleika. Eftir 57.Ke4 h3 hefði 58.Ha3! bjargað taflinu, staðan fræðilegt jafntefli. Í staðinn kom 58.Ha7+ og þessi litli munur á kóngsstöðunni (eftir 58…Kf6) er nóg til að svartur standi til vinnings. Gummi kláraði dæmið svo í lokin.
Skákin er erfiður leikur, hægt er að gera nánast allt rétt en svo geta einn mistök kostað margra klukkustunda vinnu!
FM Bárður Örn Birkisson (2) – WGM Lenka Ptácníková (½)

Enn ein sviptingaskákin. Lenka tefldi traustan semi-Tarrasch með svörtu og varðist peði undir frumkvæði hvíts. Bárður reyndi allt sem hann gat en varnir svarts virtust ætla að halda og umframpeðin á drottningarvæng að telja.
Lenka missti aðeins þolinmæðina hér, lék 46..Bc6? en þá kom 47.Hf8 og nú þarf svartur að finna nákvæma leiki sem 47…Kg7?? var ekki og 48.Hxf5! tryggði hvítum allt í einu vinningsstöðu eftir mikið harðlífi lengst af skákar.
8. umferð – úrslit
FM Örn Leó Jóhannsson – GM Guðmundur Kjartansson 0–1
GM Vignir Vatnar Stefánsson – GM Hannes Hlífar Stefánsson ½–½
IM Dagur Ragnarsson – IM Björn Þorfinnsson 1–0
CM Björn Hólm Birkisson – IM Hilmir Freyr Heimisson 0–1
FM Bárður Örn Birkisson – WGM Lenka Ptácníková 1–0
Hádramatísk umferð með mikið af sveiflum!
Staðan eftir 8 umferðir
IM Hilmir Freyr Heimisson – 7 vinningar
GM Vignir Vatnar Stefánsson – 6,5 vinningar
GM Hannes Hlífar Stefánsson – 6 vinningar
IM Dagur Ragnarsson – 5 vinningar
GM Guðmundur Kjartansson – 5 vinningar
FM Bárður Örn Birkisson – 3 vinningar
IM Björn Þorfinnsson – 3 vinningar
CM Björn Hólm Birkisson – 2,5 vinningar
FM Örn Leó Jóhannsson – 1,5 vinningur
WGM Lenka Ptácníková – 0,5 vinningur
Hilmir nær sér í mikilvægt hálfs vinnings forskot. Örlögin eru nú í hans eigin höndum!
9. umferð tefld laugardaginn 9. maí kl. 11:00
WGM Lenka Ptácníková – FM Örn Leó Jóhannsson
IM Hilmir Freyr Heimisson – FM Bárður Örn Birkisson
IM Björn Þorfinnsson – CM Björn Hólm Birkisson
GM Hannes Hlífar Stefánsson – IM Dagur Ragnarsson
GM Guðmundur Kjartansson – GM Vignir Vatnar Stefánsson
Hilmir hefur hvítt gegn Bárði, sigur þar tryggir titilinn. Vignir hefur svart gegn Guðmundi og þarf að vinna og treysta á hjálp frá Bárði. Hannes þarf að treysta á að hvorki Hilmir né Vignir vinni og vinna sína skák. Aukakeppni er möguleg en allavega ljóst að spennan er gríðarleg!
Skákáhugamenn velkomnir í Miðgarð umferðin hefst 11:00 útsendingar skáka hafa 15 mínútna seinkun á Lichess.
Samantekt frá áttunda keppnisdegi í umsjón FM Ingvars Þór (væntanleg síðar)
- Mótið á Chess-Results
- Beinar útsendingar á Lichess
Myndaalbúm á Flickr (notið örvar til að fletta myndum!)
Um mótið:
Alls taka tíu keppendur þátt, þar af þrír stórmeistarar. Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson telst líklegastur til sigurs, en hinir tveir stórmeistararnir, Hannes Hlífar Stefánsson (þrettánfaldur Íslandsmeistari) og Guðmundur Kjartansson (þrefaldur Íslandsmeistari), eru taldir veita honum harða keppni. Athyglisvert er að Vignir mætir þeim báðum í síðustu tveimur umferðunum. Þá gætu aðrir keppendur einnig komið á óvart og blandað sér í toppbaráttuna.
Einnig vekur athygli að tvíburabræðurnir Bárður Örn og Björn Hólm Birkisson tefla báðir í mótinu – slíkt hefur ekki gerst áður á Íslandsmótinu, þó bræður og jafnvel feðgar og hjón hafi áður teflt saman.
Tefldar verða níu umferðir, þar sem teflt er daglega kl. 15, nema í lokaumferðinni 9. maí sem hefst kl. 11. Komi til aukakeppni verður hún tefld strax að lokinni lokaumferð.















