Úrslitin á Íslandsmótinu í skák ráðast í lokaumferðinni í dag sem hefst fyrr en venjulega eða kl. 11.
Hilmir Freyr hefur hálfs vinnings forskot á Vignir Vatnar sem hefur annan hálfan vinning á Hannes Hlífar. Þeir þrír geta því allir orðið Íslandsmeistarar.
Hilmir Freyr mætir Bárði Erni. Sigur tryggir honum Íslandsmeistaratitilinn. Jafntefli tryggir honum jafnvel sigur og a.m.k. aukakeppni. Tap gæti tölfræðilega dugað til sigurs eða aukakeppni.
Vignir Vatnar teflir við Guðmund Kjartansson og þarf helst að vinna og treysta á að Hilmir vinni ekki
Hannes teflir við Dag og verður að vinna. Hans eina von er að Hilmir tapi og Vignir geri jafntefli eða tapi.
Umferðin í dag hefst kl. 11 eins og áður sagði.
Tefldar verða níu umferðir, þar sem teflt er daglega kl. 15, dagana 1.-9. maí, nema í lokaumferðinni 9. maí sem hefst kl. 11. Komi til aukakeppni verður hún tefld strax að lokinni lokaumferð.
- Mótið á Chess-Results
- Beinar útsendingar á Lichess
Um mótið:
Alls taka tíu keppendur þátt, þar af þrír stórmeistarar. Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson telst líklegastur til sigurs, en hinir tveir stórmeistararnir, Hannes Hlífar Stefánsson (þrettánfaldur Íslandsmeistari) og Guðmundur Kjartansson (þrefaldur Íslandsmeistari), eru taldir veita honum harða keppni. Athyglisvert er að Vignir mætir þeim báðum í síðustu tveimur umferðunum. Þá gætu aðrir keppendur einnig komið á óvart og blandað sér í toppbaráttuna.
Einnig vekur athygli að tvíburabræðurnir Bárður Örn og Björn Hólm Birkisson tefla báðir í mótinu – slíkt hefur ekki gerst áður á Íslandsmótinu, þó bræður og jafnvel feðgar og hjón hafi áður teflt saman.
Tefldar verða níu umferðir, þar sem teflt er daglega kl. 15, nema í lokaumferðinni 9. maí sem hefst kl. 11. Komi til aukakeppni verður hún tefld strax að lokinni lokaumferð.

















