Fimmta umferð Íslandsmótsins í skák var tefldi í dag í Miðgarði í Garðabæ. Hilmir Freyr Heimisson var efstur með fullt hús fyrir umferðina og mætti Guðmundi Kjartanssyni í toppuppgjörinu en Guðmundur var hálfum vinningi á eftir Hilmi. Hilmir er í algjöru banastuði og lagði Guðmund að velli og hefur áfram fullt hús. Næstur á hæla Hilmis er Íslandsmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson sem lagði Lenku Ptacnikovu að velli í dag.
Rennum yfir gang mála í þessari umferð:
IM Hilmir Freyr (4) – GM Guðmundur (3½)
Toppuppgjörið bauð upp á spænska leikinn, Hilmir valdi nú að leika d3 snemma, anti-Marshall línu. Ljóst var að baráttan myndi ná langt fram í miðtaflið strax eftir byrjunina. Til tíðinda tók að draga í 23. leik.
23…h6? var ekki nógu vel ígrundaður hjá Guðmundi og hér fann Hilmir 24.Rxf7! og fær hrók og tvö peð fyrir tvo riddara. Riddarar svarts vinna ekkert sérstaklega saman og það eru peð á báðum vængjum. Staðan líklega tæknilega unnin. Hilmir endaði svo á að fórna hrók fyrir annan riddarann og frelsingjar hans á kóngsvængnum gerðu út um skákina.
Frábært hjá Hilmi, 5 af 5 á þessu móti og alls 11 sigurskákir í röð í kappskák!
IM Björn Þ. (2) – GM Hannes Hlífar (3)
Tímanotkun Björns í byrjuninni var vafasöm og dularfull. Undirbúningur væntanlega eitthvað klikkað. Sérstaklega dularfullt í ljósi þess að keppendur höfðu stöðuna eftir 10 leiki líka á borðinu á Íslandsmótinu 2017 í Hafnarfirði. Björn var kominn niður í 40 mínútur þegar hann lék 11.Dxd2 þrátt fyrir þá staðreynd! Fyrsti „nýji“ leikurinn var 12.Hc1.

Hannes virtist hafa sitt betur á hreinu og þjarmaði að rými Björns sem sá sig tilneyddan að gefa peð. Hannes brást ekki best við og Björn náði ógnarhaldi á c-línunni sem gaf honum nægjanlegt spil fyrir peðið. Hannes hélt umframpeðinu en Björn fann gott spil og gat fórnað skiptamun fyrir þráskák í lokin.

WGM Lenka (0) – GM Vignir Vatnar (3)
Vignir virtist tefla byrjunina eilítið glannalega gegn Lenku. Hvítur klárlega með betra tafl en frumkvæðið einhvern veginn fjaraði út og svartur kominn með jafnt tafl í kringum 17. leik. Vignir tók þá að hrifsa frumkvæðið og hvíta staðan varð of veik útaf peðsleikjum sem gáfu eftir reiti.
Ögurstundin var ef til vill hér. Vignir er kominn með betra hér en hvítur verður að reyna að verja hróksendataflið með 25.Rc4 og vona það besta. 25.Rc8? skildi riddarann eftir sem strandaglóp inni í svörtu stöðunni. Vignir vann riddarann nokkrum leikjum síðar og skákina.
FM Bárður Örn (1) – IM Dagur (2½)
Dagur virtist vel undirbúinn með svörtu og úðaði út leikjunum jafnharðan og mótleikur hvíts birtist á borðinu allt fram í 17. leik. Dagur hafði þá 1:34 á klukkunni og hugsaði sig um í 7 mínútur.
Hvítur hér peði yfir en Dagur með hörkubætur, betri liðsskipan og kóngur hvíts á miðborðinu. Dagur var þá líka kominn með klukkutíma í tímaforskot. Bárður hélt þó vel á spöðunum og Dagur neyddist til að fara í drottningarkaup. Bárður einfaldaði frumkvæði Dags og við fórum í hróksendatafl þar sem Dagur var peði yfir en Bárður varðist mjög vel…tvípeðið á f-línunni traustara en margir halda.
Dagur gafst þó ekki upp og hélt áfram að pressa…sérstaklega útaf knöppum tíma Bárðs sem tefldi meira og minna á viðbótartímanum í lokin.
85.Kg1?? var tapleikurinn. Skiljanlega var Bárður kannski smeykur við 85.Kh3 Kf4 og hvítur á erfitt með að leika. Staðan er enn jafntefli en hvítur þarf að þekkja að hann má fara með kónginn „upp fyrir“ g-peðið og koma svo til baka. Engu að síður mikilvæg seigla hjá Degi sem heldur í vonina um gott sæti í toppbaráttunni.
CM Björn Hólm (½) – FM Örn Leó (½)
Björn tefldi frumlega með hvítu, fór snemma af stað með h-peð sitt og vildi greinilega reyna að ná höggstað á svörtu stöðunni. Skákin fylgdi merkilegt nokk skák Donchenko og Sargissian frá 2023 fram í 15. leik en Örn Leó lék 15…h6 en Sargissian 15…d4!?
Björn fékk einhverja sénsa í miðtaflinu en loks fjaraði taflið út í jafnt hróksendatafl.
5. umferð – úrslit
CM Björn Hólm Birkisson – FM Örn Leó Jóhannsson ½–½
FM Bárður Örn Birkisson – IM Dagur Ragnarsson 0–1
WGM Lenka Ptácníková – GM Vignir Vatnar Stefánsson 0–1
IM Hilmir Freyr Heimisson – GM Guðmundur Kjartansson 1–0
IM Björn Þorfinnsson – GM Hannes Hlífar Stefánsson ½–½
Tvö jafntefli í þessari umferð en hefðu getað orðið fleiri ef ekki væri fyrir seigluna í Degi. Góður sigur hjá Hilmi og mikilvægur sigur hjá Vigni.
Staðan eftir 5 umferðir
IM Hilmir Freyr Heimisson – 5 vinningar
GM Vignir Vatnar Stefánsson – 4 vinningar
IM Dagur Ragnarsson – 3,5 vinningar
GM Hannes Hlífar Stefánsson – 3,5 vinningar
GM Guðmundur Kjartansson – 3,5 vinningar
IM Björn Þorfinnsson – 2,5 vinningar
FM Örn Leó Jóhannsson – 1 vinningur
FM Bárður Örn Birkisson – 1 vinningur
CM Björn Hólm Birkisson – 1 vinningur
WGM Lenka Ptácníková – 0 vinningar
Mótið orðið nokkuð tvískipt eins og búið var að spá. Ljóst er að Íslandsmeistarinn verður einhver af efstu fimm en mikið mun ráðast á úrslitum í skák Vignis gegn Hilmi.
6. umferð tefld miðvikudaginn 5. maí kl. 15:00
FM Örn Leó Jóhannsson – GM Hannes Hlífar Stefánsson
GM Guðmundur Kjartansson – IM Björn Þorfinnsson
GM Vignir Vatnar Stefánsson – IM Hilmir Freyr Heimisson
IM Dagur Ragnarsson – WGM Lenka Ptácníková
CM Björn Hólm Birkisson – FM Bárður Örn Birkisson
Enn og aftur fær Hilmir pörun við skákmann í topp tveimur. Þriðji toppslagurinn í röð, nú svart gegn Vigni! Hannes, Guðmundur og Dagur reyna að hanga í toppnum og þurfa sigra í sínum skákum.
Skákáhugamenn velkomnir í Miðgarð umferðin hefst 15:00 útsendingar skáka hafa 15 mínútna seinkun á Lichess.
Samantekt frá fimmta keppnisdegi í umsjón FM Ingvars Þórs
- Mótið á Chess-Results
- Beinar útsendingar á Lichess
Myndaalbúm á Flickr (notið örvar til að fletta myndum!)
Um mótið:
Alls taka tíu keppendur þátt, þar af þrír stórmeistarar. Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson telst líklegastur til sigurs, en hinir tveir stórmeistararnir, Hannes Hlífar Stefánsson (þrettánfaldur Íslandsmeistari) og Guðmundur Kjartansson (þrefaldur Íslandsmeistari), eru taldir veita honum harða keppni. Athyglisvert er að Vignir mætir þeim báðum í síðustu tveimur umferðunum. Þá gætu aðrir keppendur einnig komið á óvart og blandað sér í toppbaráttuna.
Einnig vekur athygli að tvíburabræðurnir Bárður Örn og Björn Hólm Birkisson tefla báðir í mótinu – slíkt hefur ekki gerst áður á Íslandsmótinu, þó bræður og jafnvel feðgar og hjón hafi áður teflt saman.
Tefldar verða níu umferðir, þar sem teflt er daglega kl. 15, nema í lokaumferðinni 9. maí sem hefst kl. 11. Komi til aukakeppni verður hún tefld strax að lokinni lokaumferð.


















