Sjötta umferð Íslandsmótið í skák hefst kl. 15 í dag í Miðgarði. Nokkuð sérstakt að þriðju umferðina í röð þá mætir Hilmir næstefsta manni! Guðmundur, Hannes og Dagur þurfa allir á vinningi að halda ætli þeir að halda sér í baráttunni.
Í dag mætast:
- GM Vignir Vatnar Stefánsson (4) – IM Hilmir Freyr Heimisson (5)
- GM Guðmundur Kjartansson (3½) – IM Björn Þorfinnsson (2½)
- FM Örn Leó Jóhannsson (1) – GM Hannes Hlífar Stefánsson (3½)
- IM Dagur Ragnarsson (3½) – WGM Lenka Ptácníková (0)
- CM Björn Hólm Birkisson (1) – FM Bárður Örn Birkisson (1)
Samantekt frá 5. umferð í gær í umsjón FM Ingvars Þórs
Tefldar verða níu umferðir, þar sem teflt er daglega kl. 15, dagana 1.-9. maí, nema í lokaumferðinni 9. maí sem hefst kl. 11. Komi til aukakeppni verður hún tefld strax að lokinni lokaumferð.
- Mótið á Chess-Results
- Beinar útsendingar á Lichess
Um mótið:
Alls taka tíu keppendur þátt, þar af þrír stórmeistarar. Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson telst líklegastur til sigurs, en hinir tveir stórmeistararnir, Hannes Hlífar Stefánsson (þrettánfaldur Íslandsmeistari) og Guðmundur Kjartansson (þrefaldur Íslandsmeistari), eru taldir veita honum harða keppni. Athyglisvert er að Vignir mætir þeim báðum í síðustu tveimur umferðunum. Þá gætu aðrir keppendur einnig komið á óvart og blandað sér í toppbaráttuna.
Einnig vekur athygli að tvíburabræðurnir Bárður Örn og Björn Hólm Birkisson tefla báðir í mótinu – slíkt hefur ekki gerst áður á Íslandsmótinu, þó bræður og jafnvel feðgar og hjón hafi áður teflt saman.
Tefldar verða níu umferðir, þar sem teflt er daglega kl. 15, nema í lokaumferðinni 9. maí sem hefst kl. 11. Komi til aukakeppni verður hún tefld strax að lokinni lokaumferð.


















