Fjórða umferð Íslandsmótsins í skák var tefldi í dag í Miðgarði í Garðabæ. Þeir Hilmir Freyr Heimisson og Hannes Hlífar Stefánsson voru með fullt hús fyrir umferðina og mættust í toppuppgjöri. Hilmir hafði betur í hörkuspennandi skák. Guðmundur Kjartansson heldur í við Hilmi en hann lagði Lenku Ptacnikovu að velli í umferð dagsins. Vignir Vatnar Stefánsson vann sína skák gegn Bárði og er vinningi á eftir Hilmi, ásamt Hannesi.

Rennum yfir gang mála í þessari umferð:

GM Hannes Hlífar (3) – IM Hilmir Freyr (3)

Tefldur var Grunfeld (fianchetto) í toppuppgjörinu. Hilmir ætlaði greinilega að hafa ójafnvægi í stöðunni og drap með riddara á d5 í stað þess að halda samhverfu í peðastöðunni. Hannes fékk þægilegra tafl en alltaf einhver dýnamík í stöðunni.  Sverfa fór til stáls eftir 16…Hd7

Hannes ákvað að taka á d7, 17.Dxd7!? en 17.Dc2 líklegast bara jafnt tafl. Í framhaldinu fékk Hannes hættulegt frípeð á d7 og hrók og mann fyrir drottninguna. Hilmir vann sig betur út úr flækjunum og komst í vænlegt endatafl með drottningu fyrir hrók og riddara.

Hilmir kom e-peði sínu á flug í endtaflinu, náði að búa til veikleika í hvítu stöðunni en samt virtist nokkur tæknivinna eftir til að klára dæmið. Hannes gerði sig þá sekan um taktísk mistök með 52.Bh3?? gleymdi sér aðeins

52…Bxd3! og Hannes gafst upp þar sem 53.Hxd3 er ekki í boði eftir 53…Dxd3! og e-peðið verður að nýrri drottningu.

Frábær sigur hjá Hilmi og hans TÍUNDA kappskák í röð sem hann vinnur!

GM Guðmundur (2½) – WGM Lenka (0)

Tefldur var enskur leikur, „samhverfa“ afbrigðið. Merkilegt nokk kom þessi staða upp eftir 6 leiki, merkilegt af því að hún er ekkert alltof algeng en kom samt upp í þessari skák og líka í skák Vignis gegn Bárði! Gárungar bentu reyndar á að Jóhann Hjartarson hefði teflt svona með hvítu gegn Hilmi Frey á Íslandsmótinu í Hafnarfirði fyrir nokkrum árum.

Lenka var líklega ekki jafn vel að sér í fræðunum hér og Bárður (sem lék algengasta leiknum) og lék 6…d6?! sem er líklega ekki góður leikur.

Guðmundur fékk fljótt mjög þægilega stöðu, svarta staðan nokkuð gleðisnauð með stakt peð á d-línunni sem Guðmundur gat þjarmað að án þess að hafa áhyggjur af mótspili. Lenka náði að losa sig við d-peðið en það kostaði meira og minna drottningarvænginn og samstæðu frípeð Guðmundar þar réðu að lokum úrslitum.

GM Vignir Vatnar (2) – FM Bárður Örn (1)

Byrjunin var eins og áður sagði sú sama og hjá Guðmundi og Lenku

Bárður lék 6…h5 sem er tölvuleikurinn og sá algengasti. Framhaldið hafði hann hinsvegar ekki á hreinu. Eftir 7.Be2 er 7…Dc7 teorían og Bárður fékk þess í stað strax mun verra tafl skv. tölvunum.

Bárður var með 6…h5 á hreinu en ekki framhaldið

Bárður náði meira og minna að redda sér en fann ekki besta framhaldið í miðtaflinu.

Bárður lék 16…Kf8? til að hanga á h-peðinu en 16…0-0 er betri leikur, gefa h5 peðið og fá virka menn í staðinn og öruggan kóng. Þess í stað varð kóngurinn á f8 skotspónn þungu manna hvíts og Vignir braust skemmtilega í gegn og náði mikilvægum sigri.

IM Dagur (1½) – CM Björn Hólm (½)

Taflið hófst á 1.Rf3 og eftir krókaleiðum fengum við upp broddgaltar-afbrigðið svokallaða. Segja má að vandræði svarts hafi hafist í miðtaflinu þegar hann fór í tilfærslu sem á eiginlega ekki við í stöðunni eins og hún tefldist.

16…Bd8? er vitlaust plan í stöðunni. Biskupinn á c7 bítur í granít þar sem hvítur hefur valdað peð á g3 og ekkert að gera á skálínunni.

Guðmundur Kjartansson notaði þessa tilfærslu gegn Héðni Steingrímssyni í mikilvægri skák á Íslandsmótinu fyrir fjórum árum.

15…Bd8 er rökréttara hér, biskupinn fer svo á c7 og svartur er með færi á b8-h2 skálínunni.

Dagur hóf strax sóknaraðgerðir á kóngsvæng sem báru árangur enda vantaði hreinlega menn í vörnina hjá svörtum. Færi var á fjölda „fréttablaðsleikja“

25.Rf6! skemmtilegur og svo lokafléttan…

31.Hxd8! og svartur gaf nokkrum leikjum síðar.

FM Örn Leó (½) – IM Björn Þ. (1)

Upp kom skoski leikurinn í skák Arnar Leó og Björns. 1.e4 kannski óvænt þar sem hann hefur mest verið í Colle/London uppstillingum. Björn var engu að síður klár og lék öllum leikjum meira og minna samstundis þar til Örn lék 10.Bd2 og Björn fór í prakkaragírinn! Flestum þótti ljóst að 10…Dxb2 yrði svarað með 11.Bc3 en Björn taldi sig sjá einhver spennandi færi.

Bjössi tók á b2 og Örn lék einmitt 11.Bc3 og Bjössi tók á c2, 11…Dxc2. Flestir hefðu haldið að krítíski leikurinn væri að taka á g7. Svartur fær einhverjar bætur og sókn en verður miklu liði undir. Örn hinsvegar guggnaði á því og lék 12.Bc4. Báðir eyddu þeir miklum tíma á þessum kafla. Björn notaði 45 mínútur á Dxb2 og Örn fór líka „í tankinn“.

Hvítur mátti taka á g7 en það er skiljanlegt að vilja ekki fara í flækjur þar sem einn leikur gæti kostað skákina. Mögulega kostaði hið öfuga þó skákina því Björn fékk fljótlega betra tafl.

18…Rf6! var skemmtilegur millileikur og Björn var orðinn tveimur peðum yfir og vann fljótlega skiptamun og svo skákina.

4. umferð – úrslit

FM Örn Leó Jóhannsson – IM Björn Þorfinnsson 0–1
GM Hannes Hlífar Stefánsson – IM Hilmir Freyr Heimisson 0–1
GM Guðmundur Kjartansson – WGM Lenka Ptácníková 1–0
GM Vignir Vatnar Stefánsson – FM Bárður Örn Birkisson 1–0
IM Dagur Ragnarsson – CM Björn Hólm Birkisson 1–0

Engin jafntefli í þessari umferð!

Staðan eftir 4 umferðir

IM Hilmir Freyr Heimisson – 4 vinningar
GM Guðmundur Kjartansson – 3,5 vinningar
GM Vignir Vatnar Stefánsson – 3 vinningar
GM Hannes Hlífar Stefánsson – 3 vinningar
IM Dagur Ragnarsson – 2,5 vinningar
IM Björn Þorfinnsson – 2 vinningar
FM Bárður Örn Birkisson – 1 vinningur
CM Björn Hólm Birkisson – 0,5 vinningur
FM Örn Leó Jóhannsson – 0,5 vinningur
WGM Lenka Ptácníková – 0 vinningar

Mótið virðist ætla að tvískiptast…Dagur gæti mögulega hangið í topphelmingnum en Björn þarf góð úrslit strax til að ná góðu móti.

5. umferð tefld miðvikudaginn 5. maí kl. 15:00

CM Björn Hólm Birkisson – FM Örn Leó Jóhannsson
FM Bárður Örn Birkisson – IM Dagur Ragnarsson
WGM Lenka Ptácníková – GM Vignir Vatnar Stefánsson
IM Hilmir Freyr Heimisson – GM Guðmundur Kjartansson
IM Björn Þorfinnsson – GM Hannes Hlífar Stefánsson

Aftur fáum við algjöra toppviðureign en þeir Hilmir og Guðmundur mætast. Vignir og Hannes reyna að halda í við toppinn en þeir fá báðir svart á morgun.

Framundan topbaráttuskák milli Hannesar og Hilmis á morgun! Skákáhugamenn velkomnir í Miðgarð umferðin hefst 15:00 útsendingar skáka hafa 15 mínútna seinkun á Lichess.

Páll Sigurðsson heldur örugglega um taumana í Miðgarði.

Samantekt frá þriðja keppnisdegi í umsjón FM Ingvars Þórs (væntanlegt)

Myndaalbúm á Flickr (notið örvar til að fletta myndum!)

Íslandsmótið í skák 2026

Um mótið:

Alls taka tíu keppendur þátt, þar af þrír stórmeistarar. Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson telst líklegastur til sigurs, en hinir tveir stórmeistararnir, Hannes Hlífar Stefánsson (þrettánfaldur Íslandsmeistari) og Guðmundur Kjartansson (þrefaldur Íslandsmeistari), eru taldir veita honum harða keppni. Athyglisvert er að Vignir mætir þeim báðum í síðustu tveimur umferðunum. Þá gætu aðrir keppendur einnig komið á óvart og blandað sér í toppbaráttuna.

Einnig vekur athygli að tvíburabræðurnir Bárður Örn og Björn Hólm Birkisson tefla báðir í mótinu – slíkt hefur ekki gerst áður á Íslandsmótinu, þó bræður og jafnvel feðgar og hjón hafi áður teflt saman.

Tefldar verða níu umferðir, þar sem teflt er daglega kl. 15, nema í lokaumferðinni 9. maí sem hefst kl. 11. Komi til aukakeppni verður hún tefld strax að lokinni lokaumferð.

 

- Auglýsing -