Það bar helst til tíðinda í fjórðu umferð á TePe Sigeman-mótinu í Malmö í dag að Magnus Carlsen tapaði seinni skák gegn hollenska stórmeistaranum Jorden van Forrest. Greinilega eitthvað ryð hjá Carlsen sem gerði mikið af mistökum í endataflinu gegn Hollendingnum. Tyrkinn Erdogmus heldur áfram að heilla með skemmtilegri taflmennsku og lagði hinn lánlausa heimamann Nils Grandlius að velli í flókinni skák.

Magnus hafði svart og beitti Najdorf gegn Forrest sem venjulega er mjög vel undirbúinn í byrjunum. Forrest beitti f4 afbrigðinu gegn Carlsen en Norðmaðurinn náði að jafna taflið en svarta staðan var samt alltaf aðeins erfiðari.

Hér hefði Carlsen þurft að leika 19…Rdf6 til að ná að hróka í næsta leik. Eins og skákin tefldist 19…Hc8?! 20.c4 þá þarf svartur að finna hinn ómennska 20…Hf8!? til að halda nokkurn veginn í horfið. Carlsen lék 20…Rdf6, einum leik of seint og eftir 21.Rc6! var hann kominn í vandræði!

Svartur nær ekki að hróka og Magnus ákvað að fórna skiptamun 21…Hxc6 sem hann er eiginlega tilneyddur til. Hvíta taflið hélst betra, líklega unnið en Forrest missti tökin í endtaflinu.

53.g4! hefði verið rétt hér til að halda peðunum. Forrest missti eytt peð í stöðunni sem var óþarfi og jafnteflið virtist á næsta leyti. Carlsen sem venjulega er allt að því óskeikull í endatöflum fór nú að leika af sér.

61…h5! er nauðsynlegt og riddarinn getur falið sig á h6 eða h4 og haldið nálægð við kónginn. 61…Rd4?? var upphafið að endinum. Forrest fékk unnið en engu að síður tóku þeir nokkur skipti til viðbótar þar sem skákin sveiflaðist í jafntefli aftur í unnið á hvítt og svo aftur til baka. Á endanum skilaði Carlsen skákinni til Forrest sem eftir allt saman vann sanngjarnan sigur.

Erdogmus gjörsamlega klossmátaði Grandelius sem er með núll vinninga á heimavelli!

32.Re6! lokar útgönguleiðum kóngsins og Hh7# er að koma. 32…g5 gerði lítið 33.Rf8 lokar nú g6 reitnum og mátið að koma.

Zhu Jiner slátraði Woodward sem tefldi illa en þeir Abdusattorov og Erigaisi skildu jafnir, Úzbekinn nagar sig væntanlega í handarbökin en hann hafði mjög vænlegt miðtafl.

Erdogmus nú efstur með 3 vinninga en þeir Abdusattorov, Erigaisi og van Forrest koma næstir með 2,5 vinning. Carlsen þarf að spýta í lófana í seinni part mótsins með 2 vinninga eftir 4 umferðir. Fimmta umferð verður tefld á morgun en skákir byrja 13:00 að íslenskum tíma…fín upphitun fyrir Íslandsmóts-skákir sem fyrr!

Um mótið:

Tepe Sigeman er sterkt mót sem haldið er í Svíþjóð og hefur vakið athygli fyrir skemmtilegan keppendalista í gegnum tíðina. Sérstaka athygli vakti þátttaka Magnus Carlsen í ár. Óstaðfestar heimildir herma að Carlsen hafi tekið þátt þar sem golfvellir í nánd við mótsstað eru með besta móti!

Umhugsunartíminn er 90 mínútur fyrir fyrstu 40 leikina, síðan 30 mínútur til loka skákar, með 30 sekúndna viðbót frá fyrsta leik, og samkvæmt svokölluðum Malmö-reglum eru jafnteflistilboð ekki leyfð fyrir 40. leik.

Keppendahópurinn er glæsilegur: Magnus Carlsen, Nodirbek Abdusattorov, Arjun Erigaisi, Jorden van Foreest, Yağız Kaan Erdoğmuş, Nils Grandelius, Andy Woodward og Jiner Zhu. Þarna mætast reyndir stórmeistarar og nokkrir af áhugaverðustu ungu skákmönnum heims, flestir frumlegir og hvassir skákmenn.

- Auglýsing -