Glæsilegt 81 manna skákmót var haldið í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur í Faxafeni 12 í gær, mánudagskvöld. Um var að ræða opnunarmót VignirVatnar.is sem er kennsluvefur í skák þar sem nýjasti stórmeistari Íslendinga kennir skák.
Keppendur voru á öllum aldri, getustigum, þjóðerni og bara allskonar! Tefldar voru 9 umferðir með hinum klassísku hraðskáktímamörkum 3+2.
Skemmst er frá því að segja að stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson var í algjöru banastuði og hreinsaði mótið, 9 vinningar af 9 mögulegum! Í öðru sæti varð Ingvar Wu Skarphéðinsson með 7 vinninga, stórkostlegur árangur hjá honum og ritstjórinn Björn Þorfinnsson var jafn honum að vinningum með 7 vinninga í 3. sæti.
Ýmis aukaverðlaun voru veitt.
Jóhann Ingvason var hlutskarpastur í U2000 flokki, Sverrir Hákonarson í U1600, Jóhanna Björg fékk kvennaverðlaun, Ingvar Wu U-16 verðlaunin og Birkir Hallmundarson U-12.
Vinningshafar:

Úrslit á Chess-Results
Skákstjórn var í öruggum höndum Gunnars Björnssonar og honum til aðstoðar voru Omar Salama og Ingvar Þór Jóhannesson.

Aðeins meira um vefinn VignirVatnar.is
Þessi námskeið eru ætluð fyrir alla skákáhugamenn, hvort sem að maður sé byrjandi eða reyndur skákmaður þá er kennsluefni fyrir alla! Markmiðið með þessum námskeiðum er að kveikja áhuga fólks á skák og gefa fólki á öllum getustigum tækifæri til þess að læra og bæta sig á skemmtilegan hátt. Þessi námskeið innihalda yfir 300 myndskeið þar sem ég fer yfir allt frá byrjunum til endatafls og margt fleira. Það koma ný myndskeið í hverri viku þannig það verður alltaf eitthvað nýtt að læra!
Nokkrar myndir frá mótinu:


















