Þriðja umferð Teplice Open fór fram í gær í Tékklandi. Prýðilega gekk í gær og kom 4½ vinningur í hús hjá íslensku ungmennunum sex.
Alþjóðlegi meistarinn Hilmir Freyr Heimisson (2413) er efstur þeirra með 2½ vinning eftir sigur á FIDE-meistara.
Tvíburarnir Björn Hólm (2121) og Bárður Örn Birkissynir (2179) koma næstir með 2 vinninga. Unnu báðir í gær.
Alexander Oliver Mai (2128) hefur 1½ vinning, Davið Kolka (1959) og Aronr Þór Mai (2077) hafa 1 vinning.
Fjórða umferð fer fram í dag. Þá teflir Hilmir við aserska stórmeistarann Eltaj Safarli (2609). Tvíburarnir tefla við alþjóðlega meistara.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsending (hefjast flestar kl. 13)
- Auglýsing -
















