Fjöldi Íslendinga er að tafli á ýmsum mótum víðsvegar um Evrópu. Flestir eru í Prag þar sem fjórða umferð á Prag Open fór fram í dag. Hannes hóf leik á opnu móti í Tenerife en Margeir Pétursson lauk leik í Pula.

Aleksandr Domalchuk-Jonasson var í beinni útsendingu í dag á efsta borði. Þar mætti hann tékkneska landsliðsmanninum Vojtech Plat (2516). Aleksandr lenti í erfiðri vörn og varð að gefa peð en náði að halda endataflinu og ná sér í gott jafntefli með svörtu mönnunum.

Hilmir Freyr Heimisson lagði þýska skákmeistarann Sebastian Reimann (2265) í skák dagsins.

Báðir hafa þeir 3,5 vinning af 4 mögulegum og verða í beinni útsendingu á morgun í 5. umferðinni.

Alexander Oliver Mai (2128) og Björn Hólm Birkisson (2121) gerðu báðir jafntefli með svörtu við skákmenn yfir 2300 elóstigum og geta verið sáttir með daginn. Þeir hafa 2,5 vinning eins og Bárður Örn Birkisson (2179) sem vann sína skák í dag gegn 1900 stiga manni.

Davíð Kolka (1959) vann sína skák og hefur 2 vinninga eins og Aron Þór Mai (2077) sem gerði jafntefli í sinni skák. Jóhann H. Ragnarsson (1908) tapaði sinni skák og hefur 1 vinning.

Stórmeistarinn Margeir Pétursson (2444) lauk leik í dag á Pula Open í Króatíu. Margeir var í góðum gír með 5,5 vinning úr fyrstu sjö umferðunum en varð að lúta í dúk í síðustu tveimur. Í umferð dagsins tapaði Margeir gegn Franc Borna (2197) efnilegum Króata fæddur 2007.

Líkt og andstæðingur Margeirs í gær tefldi Borna þessi skínandi vel  (96% accuracy og 12 acl)

Dagana 23.-25. júní fór fram HSG-Open í Hollandi. Þeir Björn Þorfinnsson og Gauti Páll Jónsson tefldu á þessu hraðmóti þar sem tefldar voru tvær skákir á dag.

Björn Þorfinnsson (2369) hóf daginn með 3,5 vinning af 4 og fékk því algjöra lykilskák gegn alþjóðlega meistaranum Nico Zwirs í 5. umferðinni. Björn náði ekki að verjast sóknartilburðum hins hollenska og laut í dúk.

Björn hafði svo betur í seinni skák dagsins og lauk leik með 4,5 vinning af 6 sem dugði í 5. sætið.

Gauti Páll að tafli í Kragerö: Mynd: Facebook-síða mótsins.

Gauti Páll Jónsson (2073) hafði 2 vinninga 4 fjórum og gerði jafntefli í báðum skákum dagsins gegn stigalægri andstæðingum. Gauti lauk leik með 3 vinninga af 6.

Jóhann Hjartarson (2454) byrjar ekki vel í Dortmund og tapaði í dag gegn Simon J Roe (2150) í annarri umferðinni.

Hannes Hlífar Stefánsson teflir á sterku opnu móti í Tenerife sem hófst í dag og lýkur 2. júlí. Hannes lagði að velli hina pólsku Weroniku Zabrzönsku (1990) í fyrstu umferðinni.

- Auglýsing -