Hilmir Freyr Heimisson er í banastuði á opna mótinu í Prag og hefur nú 4,5 vinning af 5 eftir sigur í skák dagsins. Auk Hilmis eru sjö Íslendingar að tafli í Prag. Björn Þorfinnsson, Gauti Páll Jónsson og Margeir Pétursson luku leik á sínum mótum í gær en Jóhann Hjartarsson og Hannes Hlífar Stefánsson sitja enn að tafli.
Hilmir vann góðan sigur í skák dagsins gegn Kyrgistanum Sultan Chubakov (2267). Sem fyrr var mikil dýnamíkí skák Hilmis og fann hann marga skemmtilega og óvænta leiki. Hilmir náði að snúa á Sultan og stóð til vinnings en missti þráðinn og upp kom endataflið hrókur gegn biskup sem er steindautt jafntefli. Eitthvað virtist vanta upp á þekkinguna hjá Kyrgistanum og fór hann með kóng sinn frá rétta horninu og lenti í vandræðum og Hilmir færði góðan sigur til bókar.
Hilmir hefur eins og áður sagði 4,5 vinninga 5. Hilmir fær svart á indverska FIDE meistarann Rao Sharan (2248) í næstu umferð.
Aleksandr Domalchuk-Jonasson mætti pólska stórmeistaranum og fyrrverandi landsliðsmanninum Tomas Polak (2503). Sasha hafði mjög vænlega stöðu í miðtaflinu og jafnvel vinningsstöðu. Polak náði að verjast hrifsa yfirhöndina í hróksendatafli. Okkar maður átti samt jafnteflið í hendi peði undir í hróksendatafli. Það var ekki fyrr en í 103. leik sem tapleikurinn kom. 103.Hb8?? var tapleikurinn þegar 103.Ha3! var eini leikurinn sem heldur jafnteflinu.
Svekkjandi tap hjá Aleksandr sem hefur 3,5 vinning og fær svart á hollenska alþjóðlega meistarann Gerard Welling (2253) í næstu umferð. Bárður Örn Birkisson (2179) er einnig kominn með 3,5 vinning eftir sigur í skák dagins gegn Stefan Rucabado (1894).
Alexander Oliver Mai (2128) gerði jafntefli við Malasíska alþjóðlega meistarann Rohan Shan Tze Navaratnam (2315) og hefur 3 vinninga eins og Davíð Kolka (1959) og Aron Þór Mai (2077) sem unnu sínar skákir.
Björn Hólm Birkisson (2121) laut í dúk og hefur 2,5 vinning og loks vann Jóhann H. Ragnarsson (1908) sinn andstæðing og hefur 2 vinninga.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast flestar kl. 13)

Jóhann Hjartarson (2454) er langt frá sínu besta í Dortmund og hefur tapað öllum skákum sínum. Í dag tapaði hann gegn Indverjanum Krishnan Ritvik (2021), enn einn skákmaðurinn fæddur 2007 sem hefur veitt okkar mönnum skráveifur síðustu daga.

Hannes Hlífar Stefánsson teflir á sterku opnu móti í Tenerife sem hófst í gær og var tvöfö0ld umferð í dag. Hannes tók yfirsetu í morgunumferðinni en lagði indverska alþjóðlega meistarann A.R. Ilampharthi (2393) í seinni umferðinnio og hefur því 2,5 vinning að 3 umferðum loknum.
Hannes fær annan indverskan alþjóðlegan meistara í 4. umferðinni.

















