Íslensku strákarnir áttu flottan dag í opna flokknum í České Budějovice og mokuðu inn vinningunum. Hilmir tefldi fína skák gegn GM Petr Haba en lék af sér og tapaði. Hallgerður tefldi tvöfalda umferð á Korsíku

Vignir Vatnar Stefánsson komst beint aftur á beinu brautina eftir svekkjandi tap í þriðju umferðinni. Vignir mætti Tékkanum Vaclav Bartos (2019). Sá tékkneski beitti kóngsindverskri vörn með svörtu og tók ákvörðun um að fórna skiptamun. Gjörsamlega galin ákvörðun þar sem hann fórnaði hróknum fyrir svartreita-biskup hvíts en fékk ekkert spil á svörtum reitum í staðinn, skilningur = enginn. Ritstjórn leggur til að Vaclav verði færður undir 1700 stig bara fyrir þessa ákvörðun!
Miðað við þessa ákvörðun þá var þetta líklegast bara skyldusigur hjá Vigni og hann fær enga köku fyrir!

Vignir hefur 3 vinninga af 4 og hið sama gerir Benedikt Briem (2127) sem vann strategískt vel útfærða skák í dag. Hann hafði svartgegn Adam Vylicil (1967) frá Tékklandi. Adam beitti London kerfinu vinsæla en Benedikt var vel undirbúinn. Hann tefldi strategískt upp á drottningu+riddara gegn drottningu+biskup og vann vel úr því.
Benedikt missir hinsvegar möguleikann á að fá köku fyrir að missa af 29…Rxe3! og hvíta staðan hrynur.
Alexander Oliver Mai (2137) er einnig með þrjá vinninga eftir rólegan dag á skrifstofunni. Tomas Pisar (1749) átti ekki góðan dag og lenti í vandræðum gegn Belgrade-gambít Alexanders. Okkar maður átti svo fréttablaðsleik dagsins sem knúði uppgjöf!
15.Hxe7! og svartur laut í dúk.
Bárður Örn Birkisson (2199) er einnig með með 3 vinninga en hann náði gjörsamlega að kreysta allt sem hægt var úr örlítið betra endatafli. Drepið á d5 í frakkanum og leiðindin algjör! Það sagði enginn að skák ætti að vera eitthvað skemmtileg!
Björn Hólm Birkisson (2137) gerði jafntefli við Vik Vilimek (1997) í tíðindalítilli skák. Björn hefur 2,5 vinnng.

David Kolka (1938) hvítt gegn Beata Havelkova (1707). David átti frekar auðvelda skák og fékk frípassa á h-línunni sem hann nýtti sér. David hefur 2 vinninga.
Aron Þór Mai (2037) er ekki að eiga gott mót og hefur 1 vinning. Hann var eini Íslendingurinn sem tapaði í dag í opna flokknum. Jaroslav Linhart (1790) var með mun verra og jafnvel gjörtapað tafl en Aron Þór gaf honum færi á „djöflatrikki“ á löngu skálínunni og varð Aron að lúta í dúk

Hilmir Freyr Heimisson (2404) hafði hvítt á stórmeistarann Petr Haba (2420) frá Tékklandi. Haba hefur oft teflt við Íslendinga og t.a.m. tefldi Stefán Kristjánsson á sínum tíma nokkrar skákir við Haba ámótumí Tékklandi.
Hilmir fékk fína stöðu og hafði ágætis frumkvæði og betri kalla í endtafli en gerði taktísk mistök og eftir 36…f4 snerist taflið algjörlega og Haba hafði að lokum sigur. Svekkjandi tap hjá Hilmi.

Landsliðskonan Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir (1942) tefldi tvöfalda umferð í dag. Í fimmtu umferð vann Hallgerður sigur á CM Radu Stoenescu (1997) og lyfti sér upp í 50% skor.
Í seinni umferðinni mætti hún slóvensku landsliðskonunni Teju Vidic (2099), úrslit liggja ekki fyrir þegar þetta er skrifað.


















