
Hinn síungi og sístúderandi Áskell Örn Kárason fagnar í dag sjötugsafmæli sínu. Áskell hefur verið mjög áberandi í íslensku skáklífi um áratugaskeið og gengið í ýmis hlutverk. Hann hefur nánast borið skáklíf á Akureyri á herðum sér um langt skeið.
Áskell er sterkur skákmaður sjálfur og margoft teflt í landsliðsflokki en auk þess hefur hann einnig gengið í ýmis hlutverk. Áskell var um tíma forseti Skáksambands Íslands. Formennsku hefur hann sinnt lengur en elstu menn muna hjá Skákfélagi Akureyrar og einnig séð um kennslu í fjölmörg ár á Akureyri, og gerir enn!

Fréttaskrif og pistlaskrif hafa einnig fallið í hlut Áskels sem hefur verið í hlutverki skákfréttaritara og skrifað óteljandi greinar í tímaritið Skák í gegnum árin. Auk þess hefur Áskell verið í hlutverki liðsstjóra, bæði hjá landsliði Íslands í opnum flokki og kvennaflokki.
Merkasti árangur Áskels var vafalítið árið 2018 þegar margfaldur skákmeistari Norðlendinga sýndi skákmönnum 65 ára og eldri um allan Evrópu hvar Davíð keypti ölið! Áskell varð þá í jöfnu efsta sæti á Evrópumeistaramóti Öldunga 65+ í Drammen í Noregi.
Þessum árangri fylgdi heiðursnafnbót. Áskell var fyrir árangurinn útnefndur sem alþjóðlegur meistari í skák og hafði fyrir borið sæmdarheitið FIDE meistari í skák. Á sínum tíma komu þessi tíðindi Áskeli í opna skjöldu en hann hafði að sjálfsögðu bara teflt af krafti um titilinn og því fallegur bónus sem hann fékk fyrir þennan árangur!

Helgi Ólafsson líkti Áskeli við Ingvar Ásmundsson á sínum tíma, sem dæmi um skákmann sem væri alltaf í framför og duglegur að stúdera. Óhætt er að segja að Helgi hafi þar reynst sannspár!
Áskell fór taplaus í gegnum mótið í Drammen 2018 og ein af lykilskákum var sigur á ísraelska alþjóðlega meistaranum Leon Lederman.
Áskell er afar traustur drottningarpeðsskákmaður og náði í sína vinninga með hvítu mönnunum á mótinu. Hér hefur hann byggt upp rjómastöðu gegn Ísraelanum og hamraði járnið með 22.Re4! og varnir svarts hrynja. Ekki má taka riddarann vegna 23. Hf7 og hvítur vinnur. Leon reyndi 22…Be6 23.Bxe6 Rgxe6 24.Rd6 og svarta staðan er að hruni komin. Svartur fórnaði skiptamun til að blíðka goðin en Áskell gaf engan grið og vann mikilvægan sigur.
Hér er snotur flétta sem Áskell náði í skákinni Karasev-Kárason á HM öldunga 2013.
Karasev var að leika 27.e5? sem Kárason svaraði með
27…Hxf3! svartur fær gott endatafl eftir 28.Hxd7+ Bxd7 29.gxf3 Bc6 30.Kg2 g5! 31.Kg3 Kg6 32.f4 Kf5!
Áskell leikur besta tölvuleiknum í hverjum leik og hér vinnur hann e5 peðið. 33.fxg5 Kxg5 34.Kf2 Kf4 og e-peðið fellur og svartur á unnið tafl.
Hér er brot úr skák frá árinu 1996 þar sem Áskell „trikkar“ rússneska stórmeistarann Alexander Raetsky.
Raetsky lék skelfilega af sér með 21.De4?? Áskell lét ekki bjóða sér tvisvar í partýið, 21…Dg3! og Raetsky varð að lúta í dúk.
Skak.is óskar Áskeli innilega til hamingju með stórafmælið og megi hann halda áfram að dafna á vizkualdrinum og dreifa fagnaðarerindi skáklistarinnar!

















