Vignir Vatnar og Hilmir Freyr tefla í fyrsta skipti fyrir a-lið Íslands á EM í nóvember.

Landliðsþjálfarar í opnum flokki og kvennaflokki hafa tilkynnt val sitt á landsliðum Íslands á EM landsliða sem fram fer í Budva í Svartfjallalandi dagana 11.-20. nóvember nk. Allir sem leitað var til gáfu kost á sér.

Landslið Íslands í opnum flokki skipa (í stigaröð)

  1. GM Hannes Hlífar Stefánsson (2532)
  2. GM Hjörvar Steinn Grétarsson (2522)
  3. GM Vignir Vatnar Stefánsson (2487)
  4. GM Guðmundur Kjartansson (2444)
  5. IM Hilmir Freyr Heimisson (2404)

Landsliðsþjálfari er Helgi Ólafsson.

Vignir og Hilmir eru í fyrsta skipti að tefla í landsliði Íslands. Vignir var reyndar valinn í ólympíuliðið 2022 en gat ekki teflt vegna Covid-greiningar skömmu fyrir brottför til Indlands. Hannes, Hjörvar og Guðmundur eru allir þrautreyndir landsliðsmenn.

Olga teflir í fyrsta skipti fyrir Íslands hönd í nóvember. Hér er hún ásamt Jöhönnu og Höllu sem einnig tefla á EM.

Landslið Íslands í kvennaflokki skipa (í stigaröð)

  1. WIM Olga Prudnykova (2228)
  2. WGM Lenka Ptácníková (2139)
  3. Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (2014)
  4. WFM Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir (1942)
  5. WIM Lisseth Acevedo Mendez (1810)

Landsliðsþjálfari er Ingvar Þór Jóhannesson. Olga er að tefla í fyrsta skipti fyrir Íslands hönd. Allar hinar eru þrautreyndar landsliðskonur.

EM landsliða

- Auglýsing -