Þessa dagana er að klárast þriðja mótið á „Grand Chess Tour“ en það er SuperUnited Rapid & Blitz sem fram fer í Zagreb í Króatíu.
Fyrstu þrír dagarnir voru tefldar atskákir, 3 umferðir á dag af 25+10 skákum. Eftir þann hluta voru Caruana og Nepomniatchti efstir með 12 stig hvor en atskákin gildir tvöfalt. Síðan eru tveir síðustu dagarnir 9 umferðir af hraðskák. Magnus var næstur með 11 stig.
Í gær fór fram fyrri hraðskákdagurinn, semsagt 9 umferðir allir við alla. Magnus Carlsen náði hreint ótrúlegum árangri og vann ALLAR 9 hraðskákir sínar í gær. Fyrr í vikunni varð Magnus Carlsen annar skákmaðurinn í sögunni sem vinnur Titled Tuesday á Chess.com með fullt hús, 11 vinninga af 11.
Hreint ótrúlegur árangur hjá Magnus sem var duglegur að halda tímaforskoti á andstæðinga sína sem virðist vera ein helsta ástæðan fyrir árangri hans. Hikaru Nakamura fór yfir nokkrar af skákunum og lykilatriðum í árangri Carlsen
Skákir og upplýsingar er hægt að nálgast hér
















