Guðmundur Kjartansson hefur fullt hús á opnu móti í Valencia á Spáni. Hannes Hlífar tapaði klaufalega. Josef Omarsson sat yfir í dag þar sem gærdagurinn var frídagur!

Þeir félagar Hannes Hlífar Stefánsson (2531) og Guðmundur Kjartansson (2429) sitja báðir að tafli í Valencia á Spáni þessa dagana. Þeir voru báðir með 2/2 fyrir daginn.
Hannes fékk svartí dag gegn spænska alþjóðlega meistaranum Antonio Granero Roca (2314). Sá fórnaði peði fyrir bætur gegn Nimzo-indverskri vörn Hannesar en færin virtust ekki næg. Hannes yfirspilaði Spánverjann eftir öllum kúnstarinnar reglum og er með vinningsstöðu skv. útsendingu skákarinnar í lokin.
Skak.is hefur ekki náð tali af Hannesi en skv. heimasíðu mótsins er hann paraður í 4. umferð með 2 vinninga. Því er ljóst að annaðhvort vantar leiki í útsendinguna en þá hefur Hannes leikið skelfilega af sér, eða að Hannes hefur gleymt sér og fallið á tíma. Í öllu falli, úrslitin tap hjá okkar manni.
UPPFÆRT: Hannes féll á tíma, þeir rugluðust víst á þvi hvort það kæmi viðbótartími eður ei. Klaufalegt því miður.
Guðmundur fékk líka svart, gegn argentíska alþjóðlega meistaranum Carolina Lujan (2288). Úr varð mikil baráttuskák í Najdorf og staðan líkega enn tvísýn þegar sá argentíski sá einhverjar ofsjónir. Lék glannalegum g4 leik og hélt líklegast að hann ætti einhverja sénsa á máti. Það reyndist víðsfjarri sannleikanum og Guðmundur greip tækifærið og vann auðveldlega eftir þetta.
Fjórða umferð fer fram á morgun og þá mætir Guðmundur andstæðingi Hannesar í dag á öðru borði og nær vonandi fram hefndum fyrir land og þjóð. Hannes mætir Spánverja með 2058 stig, báðir fá hvítt.

Josef Omarsson (1710) fékk skottu í 4. umferðinni en 5. umferðin fer fram á morgun. Í gær var frídagur skv. chess-results.















