Simen Agdestein vann mótið í níunda sinn!

Simen Agdestein varð um helgina norskur meistari. Simen sló þar tvö met – jafnvel má færa rök fyrir því að metin hafi verið þrjú!

Þetta er níundi meistaratitilinn Simens sem er met. Agdestein sló jafnframt eigið aldursmet frá í fyrra en hann er vel kominn inn á viskualdurinn, er 56 ára.

Agdestein er senn sá yngsti og elsti í sögunni sem hefur verið Noregsmeistari og slær að sjálsfögðu met yfir lengst á milli fyrsta og síðasta titils – 41 ár!

Nánar á Bergensjakk

Þess má einnig geta að sænska meistaramótinu lauk um helgina. Þar hampaði stórmeistarinn Vitaly Sivuk sigri en hann úkraínskur að uppruna. Einn fjölda margra úkraínumanna sem hefur þurft að flýja land eftir innrás Rússa.

Nánar á heimasíðu sænska skákambandsins

 

- Auglýsing -