Hilmir Freyr Heimisson tekur þátt í lokuðum flokki á Copenhagen Chess Challenge. Um er að ræða lokaðan IM flokk með 10 keppendum. Hilmir er næststigahæsti keppandinn á eftir IM Christian Jepsen. Fjórir dagar með tvöföldum umferðum eru á boðstólnum á mótinu. Hilmir hefur nú lokið fjórum umferðum og má vel við una með 3 vinninga af 4.

Hilmir byrjaði reyndar á tapi í fyrstu umferð. Hilmir hafði svart gegn Paulius Meskenas (2270). Upp kom ítalskur leikur og Hilmir var ekki í neinum vandræðum og gat nokkurn veginn gengið að jafnteflinu vísu en lenti í vandræðum með kónginn sem var algjör óþarfi, klaufalegt tap.

Hilmir kvittaði strax fyrir tapið með góðum sigri á alþjóðlega meistaranum Christan Jepson (2391). Hilmir fékk strax mjög þægilegt tafl eftir byrjunina, hafði betra rými og biskupaparið og vann nokkuð átakalaust þó alltaf sé stutt í dýnamíkina hjá Hilmi.

Hilmir fylgdi þessu eftir með sigri í þriðju umferð gegn Dana með langt nafn, Daniel Tuk Hartsov Jarlskov (2090). Hilmir hafði lengst af aðeins betra tafl en hvítur var alveg inni í taflinu. Undir lok tímamarkanna kom afleikur hjá hvítum sem Hilmir nýtti sér.

Í fjórðu umferð kom aftur sigur, nú gegn CM Mikkel Vinh Loftgaard (2192) og Hilmir vann sinn þriðja sigur í röð. Skákina vantar inni á lichess.

Fimmta umferð er í nú í gangi og þar hefur Hilmir hvítt á IM Bjarke Sahl (2226) frá Noregi.

- Auglýsing -