Stórmeistarinn Bragi Þorfinnsson (2394) er sigurvegari Áskorendaflokks árið 2023. Bragi á því víst sæti í Landsliðsflokki á næsta ári og Bárður Örn Birkisson mun fylgja honum þangað þrátt fyrir að hafa tapað í lokaumferðinni. Bárður getur þakkað tvíburabróður sínum sætið því hann hélt jafntefli gegn Olgu Prudnykovu í mikilvægri skák.

Bragi mætti Davíð Kjartanssyni (2292) á efsta borði og hafði svosem lítið annað að tefla uppá en efsta sætið á mótinu og ánægjuna. Margir hefðu e.t.v. samið stutt í stöðunni en þeir félagar tefldu langa, stranga, flókna og skemmtilega skák.

Bragi hafði athyglisverða peðastöðu, hvítu peðin mynda einhverskonar orm eða slöngu. Svartur er þó líklegast með betra hér enda býr meiri dýnamík á kóngsvöngnum þegar fram líða stundir.

Mikið tímahrak og miklar sviptingar einkenndu þessa skák.

Davíð hafði lengst af betra í tölvunum en hér lék hann skákinni niður í jafntefli. 67.Dxb5! hefði dugað 67…Dxb5 68.c8=D+ og hvítur á þráskák ef svartur vekur upp aðra drottningu. Bragi missti af því og Davíð átti mát í 6 leikjum hér.

Davíð fékk sér drottningu 69…h1=D? en 69…Da1! er mát í 6 leikjum þar sem Dg1+ er svínsleg hótun!

Annar vinningur lá líka í 78…Dg4+ með uppskiptum og a-peðið ræður úrslitum. Það er svosem auðvitað auðveldara að vera „besserwisser“ á hliðarlínunni með hjálp tölvunnar. Keppendur og áhorfendur voru sammála um að þetta var mjög erfið og krefjandi skák og ómögulegt að finna rökréttar leiðir á köflum.

Bragi endaði á að ná þráskák að lokum.

Á öðru borði hafði Lenka Ptacnikova (2139) hvítt gegn Bárði Erni Birkissyni (2191). Bárði nægði jafntefli enda vinningi á undan Olgu fyrir lokaumferðina.

Fyrsta krítíska augnablikið kom hér. Lenka lék 23.Re2

Bárður virtist hafa séð lengra hér. 23…Rxf3+ 24.Bxf3 Re5 25.Rf4 g5 26.Rh5 þá nær svartur peðinu á d3.

Peðið var þó mögulega dýru verði keypt. Bárður hefði líklega átt að halda betra tafli en…

24…Rg6?? var slakur. 25.Heb3!. Ótrúlegt en satt á svartur enga vörn við Dc2-b2 með tvöfaldri hótun á b-línunni og máthótun á g7 reitnum! Lenka vann mann og Landsliðsflokkssætið í hættu!

 

Bárður þurfti því að treysta á tvíburarbróður sinn Björn Hólm (2097). Olga Prudnykova (2268) hafði hvítt og fékk aðeins betra tafl en líklegast aldrei nógu mikið til að ógna Birni. og jafntefli rökrétt lokaniðurstaða. Bárður skuldar því Birni allavega kók og pulsu fyrir þessa stoðsendingu!

Gauti Páll Jónsson náði í einu vinningsskákina á sýningarborðum af þeim sem eftir voru.

Gauti bauð upp í dans með 11.Be2!? Mikael þáði boðið 11…Dxg2

Gauti fékk hættulega sókn. Athyglisverð staða kom upp eftir 18.Dc3

Má svartur leika 18…Bf6? Svarið er nei!

19.Dxf6!! gxf6 20.Bh5+! Kh8 21.Bh6 Hg8 22.Hxg8 Kxg8 23.Hg1+ Kh8 24.Bxf7

Ótrúleg leið. Svartur getur ekki stoppað bæði Hg8 með máti og Bg7 með máti.

Mikael átti mögulega varnarleiki í framhaldinu en um leið og augnablikið var farið braust Gauti í gegn.

Sérstakt hrós fer á ungu strákana Benedikt Þórisson og Ingvar Wu Skarphéðinsson. Oft eru góðir vinir að semja jafntefli og fá lítið út úr skákunum. Í staðinn tefldu þeir mikla baráttuskák, langa og stranga og stúderuðu hana svo í þaula lengi vel á eftir. Svona á að gera þetta!

Önnur skemmtileg skák var hjá Andrey Prudnikova og Jóhanni Jónssyni. Jóhann tefldi drekann af krafti. Fórnaði skiptamun snemma og fann nokkra skemmtilega leiki.

23…Hc4!? var ekki besti leikurinn skv. appörtunum en svo sannarlega skemmtilegasti leikurinn!!

Úrslit:

Staðan:

Bragi er kominn í Landsliðsflokk ásamt Bárði. Benedikt Þórisson og Mikael Bjarki voru aflakóngar mótsins! Benedikt með 91 stig í hús og Mikael 67 stig.

Hægt er að nálgast skákir 9. umferðar inni á lichess hér. Einnig hægt að hala niður 9. umferð á PGN hér.

 

- Auglýsing -