Fimmta umferðin reyndist besta umferð íslensku liðanna til þessa á EM Taflfélaga í Durres í Albaníu. Víkingaklúbburinn vann góðan og öruggan sigur á grískri sveit, Akueyringar náði í virkilega gott jafntefli við lið frá Lúxemburg og TG stelpurnar komu sér á blað í kvennaflokki með jafntefli við írskan klúbb.
Víkingaklúbburinn mætti grískri sveit sem var nokkuð stigalægri. Páll og Gunnar hvíldu og Víkinga náðu að láta elóstigin tala. Jóhann, Tapani og Davíð unnu sínar skákir með hvítu og jafntefli hjá öllum með svart, alvöru frammistaða!

Skákfélag Akureyrar náði virkilega góðu jafntefli við sveit sem er næstum 20 sætum hærri í styrkleikaröðinni. Rúnar tapaði á efsta borði gegn Cristopher Noe, sterkur IM með 2532 elóstig. Halldór Brynjar og Andri Freyr náðu virkilega sterkum jafnteflum, einnig gegn alþjóðlegum meisturum. Síðustu borðin reyndust svo drjúg, vizkualdursmennirnir Áskell og Haraldur kom sterkir inn á ögurstundu og náðu í tvo risastóra vinninga! 3-3 niðurstaðan!

Pörun liggur ekki fyrir í opnum flokki.
Kvennaflokkur
TG mætti írskri sveit, TCD. Jóhanna og Guðlaug unnu sínar skákir með hvítu en Hildur og Hallgerður töpuðu með svörtu.

Jóhanna afgreiddi sinn andstæðing snaggaralega og gervifórnaði hrók sínum tvo leiki í röð í lokin sem þvingaði uppgjöf.
Næst á dagskrá hjá TG er enska sveitin „she plays to win“!
Íslensku liðin á EM Taflfélaga í ár eru þrjú en í fyrra voru heil fjögur lið í Austurríki í mjög skemmtilegu og eftirminnilegu móti! Mótið í ár fer fram í Durres í Albaníu. Íslensku liðin eru Víkingaklúbburinn og Skákfélag Akureyar sem tefla í opnum flokki og Taflfélag Garðabæjar sem teflir í kvennaflokki. Fyrir utan íslensku liðin má benda á að þeir Margeir Pétursson og Óskar Bjarnason tefla með klúbb frá Lúxemborg.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results (opinn flokkur) | Chess-Results (kvennaflokkur)
- Beinar útsendingar Chess24 (Opinn flokkur)
- Beinar útsendingar Chess24 (Kvennaflokkur)
- Beinar útsendingar lichess (Opinn flokkur)
- Beinar útsendingar lichess (Kvennaflokkur)v
















