Nóvember-skákmót Skákfélags Mosfellsbæjar verður haldið laugardaginn n.k. 21. nóvember kl. 12:30 í Fiskabúrinu í Bókasafni Mosfellsbæjar, Þverholti 2. Mótið er opið skákfólki á öllum aldri og áætlað er að því ljúki um kl. 14:30.
Tefldar verða sjö umferðir með tímamörkunum 4+3. Mótið verður reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga.
Á staðnum verður frítt gæðakaffi í boði bókasafnsins.
Endilega skráið ykkur sem fyrst.
Þátttökugjöld
- Félagsmenn Skákfélags Mosfellsbæjar tefla ókeypis.
- Utanfélagsmenn 18 ára og eldri greiða 1.000 kr.
- Utanfélagsmenn 17 ára og yngri greiða 500 kr.
Rn. 0133-26-022776
Kt. 521225-0680
Skráning hér
Sigurvegarar fyrri móta
- Febrúarmót – Gauti Páll Jónsson
- Marsmót – Rögnvaldur Jónsson
- Aprílmót – Gauti Páll Jónsson
- Maímót – Daníel Hákon Friðgeirsson
- Septembermót – Örn Leó Jóhannsson

















