EM landsliða fer fram í Budva í Svartfjalllandi 21.-30. nóvember. Ísland sendir lið í opnum flokki og kvennaflokki. Fram að móti verða liðsmenn kynntir til leiks hver á fætur og öðrum Í dag kynnum við til Lisseth Acevedo Mendéz
EM-fararnir
- Hjörvar Steinn Grétarsson
- Hannes Hlífar Stefánsson
- Vignir Vatnar Stefánsson
- Guðmundur Kjartansson
- Hilmir Freyr Heimsson
- Olga Prudnykova
- Lenka Ptácníková
- Jóhanna Björg Jóhannsdóttir
- Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir
- Lisseth Acevedo Mendez
- Helgi Ólafsson (liðsstjóri)
- Ingvar Þór Jóhannesson (liðsstjóri)
Nafn?
Lisseth Acevedo
Borð?
5
Hver kenndi þér að tefla og hvað varstu gamall/gömul?
Pabbi minn, ég var 12 ára 🙂
Uppáhaldsskákmaður?
Mamedyarov og Judit Polgar uppáhaldsskákkona 🙂
Hvernig er þínum undirbúningi háttað fyrir EM landsliða?
Er að gera taktik æfingar á hverju degi og er að stúdera betur byrjanir með svörtu.
Hluti af hvaða landi var Svartfjallaland áður en það hét bara Svartfjallaland? (bannað að nota Google!).
Serbia?
Hversu oft hefur þú farið á EM landsliða?
Tvisvar, Slovenia 2021 og Svartfjallaland 2023
Hvaða lönd eiga landamæri að Svartfjallandlandi (Google bannað!!) – Vísbending: Landið á landamæri að fimm löndum.
Bosnia, Serbia, Kosovo, Albania, Croatia??
Hver verður fyrsti áskorandi Ding Liren?
Nepo, vona ég!
Hvað heitir núverandi heimsmeistari kvenna (Google bannað!)
Ju Wenjun 🙂
Hver er þín skrautlegasta sigurskák?
Hmm, kannski í Reykjavík Open 2017 (ég var komin átta mánuði á leið) á móti Edwyn Mesman (2199) umferð 6.
Hver eru þín markmið á mótinu?
Gera mitt besta.
Áfram?
Ísland!
















