Heimsmeistaramóti 50+ er nú lokið á Ítalíu. Okkar maður Hannes Hlífar Stefánsson kláraði mótið með stuttu jafntefli við Maxim Dlugy (2520) með svörtu mönnunum. Hvorugur hafði í raun að neinu að keppa.

Segja má að Tyrkinn Suat Atalik (2427) hafi hlotið makleg málagjöld fyrir skráveifuna sem hann veitti Hannesi í gær. Atalik var efstur fyrir lokaumferðina með hálfan vinning í forskot á Michael Adams. Atalik stýrði hvítu gegn Michele Godena sem vissulega er traustur skákmaður og staðan í jafnvægi en nóg af mönnum á borðinu þegar Atalik býður jafntefli í 15. leik. Maður spyr sig, á barmi stærsta sigurs á ferlinum að semja jafntefli í 15. leikjum?? Til hvers á annað borð að tefla ef þú reynir ekki einu sinni í þessari aðstöðu? Kannski treysti Atalik á heppni í oddastigum?

Nú var ljóst að Michael Adams væri líklegur til að vinna á oddastigum ef hann næði sigri í lokaumferðinni. Adams mætti Martin Mrva (2366) með svörtu. Kannski treysti talik Mrva fyrir því verkefni að halda jöfnu í ítalska leiknum. Vafasamt veðmál gegn einum sterkasta pósaskákmanni síðari ára!

Það var þó ekki pósinn sem réði úrslitum. Adams fann verðuga sleggju til að tryggja sér titilinn. Mrva var að leika 23.Dc4?

Hér fann Adams 23…Hxf3!! hvíta staðan þolir ekki álagið. Framhaldið varð 24.Rxf3 Rdf4+ 25.gxf4 Rh4+! og svartur stóð til vinnings.

Á endanum urðu oddastigin jafnari en stefndi í.  Innbyrðisviðureign var jöfn, tiebreak 2 var jafnt en Adams hafði hálfum vinningi betur á þriðja tiebreak! Naumari gæti það ekki orðið!

Adams heimsmeistari 50+ (mynd: Denis Burko)

Adams því heimsmeistari en fyrir viðvikið og 8,5 vinning af 11 tapar hann rúmum 6 elóstigum! Kalt er það Klara!

Hannes má nokkuð vel við una og endaði í sjötta sæti. Var gríðarlega nálægt verðaunpalli og hefði jafnvel verið að tefla upp á titilinn í lokaumferðinni með smá heppni. Hannes lækkar um tæp 5 stig og munar þar mest um slysið í 1. umferð Hannes er að standa undir stigunum og tefla á þeim styrkleika sem hann á að sér. Lofar góðu fyrir landsliðið en EM landsliða er handan við hornið!

- Auglýsing -