EM landsliða fer fram í Budva í Svartfjalllandi 11-20. nóvember. Ísland sendir lið í opnum flokki og kvennaflokki. Fram að móti verða liðsmenn kynntir til leiks hver á fætur og öðrum Í dag kynnum við til leiks Hjörvar Stein Grétarsson sem teflir á fyrsta borði í opnum flokki.
EM-fararnir
- Hjörvar Steinn Grétarsson
- Hannes Hlífar Stefánsson
- Vignir Vatnar Stefánsson
- Guðmundur Kjartansson
- Hilmir Freyr Heimsson
- Olga Prudnykova
- Lenka Ptácníková
- Jóhanna Björg Jóhannsdóttir
- Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir
- Lisseth Acevedo Mendez
- Helgi Ólafsson (liðsstjóri)
- Ingvar Þór Jóhannesson (liðsstjóri)
Nafn?
Hjörvar Steinn Grétarsson
Borð?
- borð.
Hver kenndi þér að tefla og hvað varstu gamall/gömul?
Bróðir minn þegar að ég var 6 ára gamall.
Uppáhaldsskákmaður?
Magnus Carlsen
Hvernig er þínum undirbúningi háttað fyrir EM landsliða?
Landsliðsæfingar og stúderingar í myrku, loftlausu herbergi.
Hluti af hvaða landi var Svartfjallaland áður en það hét bara Svartfjallaland? (bannað að nota Google!).
Samkvæmt leitarvélinni Bing þá er það Serbía.
Hversu oft hefur þú farið á EM landsliða?
5x.
Hvaða lönd eiga landamæri að Svartfjallandlandi (Google bannað!!) – Vísbending: Landið á landamæri að fimm löndum.
Bing er aftur alveg með þetta.
1. Bosnía og Hersegóvina.
2. Albanía.
3. Serbía.
4. Búlgaría.
5. Króatía.
Hver verður fyrsti áskorandi Ding Liren?
Fabiano Caruana.
Hvað heitir núverandi heimsmeistari kvenna (Google bannað!)
Ju Wenjun.
Hver er þín skrautlegasta sigurskák?
Sigurskák mín gegn Alexei Shirov á Evrópumóti landsliða 2011. Fær mig til að brosa enn þann dag í dag.
Hver eru þín markmið á mótinu?
Að geta litið í spegilinn eftir hverja umferð og sagt: „Þú gerðir þitt besta“.
Áfram?
Ísland.
Eitthvað að lokum?
„The only person I’m in competition with is myself. That’s to be a better, and bigger me every single day.“

















