Segja má að sveitir Breiðabliks hafi komið séð og sigrað á Íslandsmóti barna og unglingasveita sem fram fór um síðastliðna helgi. Mótið fór fram í þremur mismunandi flokkum sem var skipt eftir aldri, A, B og C- flokki. Flokkunum var skipt eftir grunnskólaaldri.

Í A-flokki höfðu Breiðabliksmenn mikla yfirburði. Skemmst er frá því að segja að a-sveit Breiðabliks vann yfirburðasigur. Liðið missti aðeins niður 3 vinninga af 28 mögulegum.

Frá vinstri: Mikael Bjarki, Birkir, Matthías Björgvin, Guðrún Fanney og Benedikt liðsstjóri

Í sveitinni voru tveir Íslandsmeistarar í sínum aldursflokki og þeir sem unnu ekki voru í baráttuni í sínum flokkum. Yfirburðir Breiðabliks voru það miklir að b-sveit Breiðabliks var í öðru sæti í flokknum!

Úrslit í A-flokki á Chess-Results

Borðaverðlaun í A-flokki hlutu Birkir Hallmundarson 4. borð, Markús Orri Jóhannsson og Matthías Björgvin Kjartansson 3. borð, Guðrún Fanney Briem 2. borð og Jósef Omarsson 1. borð.

Borðaverðlaunahafarnir

Í aldursflokknum fyrir neðan, B-flokki voru Blikar líka hlutskarpastir. Mikið hrós á starfið í Kópavoginum!

Frá vinstri: Þorsteinn J. Freyr liðsstjóri, Bjarki Már, Alfreð Dossing, Liam Nam, Halldóra, Viktor Elías og Kristján Freyr

Úrslit í B-flokki á Chess-Results

Í yngsta flokknum var það svo Taflfélag Reykjavíkur sem bar sigur úr býtum.

Rétt er þar að benda á hluta Péturs Úlfars Ernissonar sem hlaut fullt hús með liðinu, eins og hann gerðist á Íslandsmóti einstaklinga í sínum flokki.

Úrslit í C-flokki á Chess-Results

Taflfélag Garðabæjar sá um mótshaldið og skákstjórar voru Páll Sigurðsson, Sigurður Freyr Jónatansson, Jóhanna Björg Jóhannsdóttir og Lenka Ptáčníková.

- Auglýsing -